Cahill tryggði Chelsea sigur á Liverpool í Kaliforníu Tómas Þór Þórðarson skrifar 28. júlí 2016 08:30 Gary Cahill fagnar marki sínu í nótt. vísir/getty
Chelsea vann Liverpool, 1-0, í uppgjöri ensku úrvalsdeildarliðanna í International Champions Cup-æfingamótinu í nótt en leikurinn fór fram í Rósarskálinni í Kaliforníu. Gary Cahill, miðvörður Chelsea, kom Lundúnarliðinu yfir snemma leiks og það reyndist eina markið sem var skorað í nótt á þessum sögufræga velli sem hýsti úrslitaleik Brasilíu og Ítalíu á HM 1994. Chelsea spilaði manni færri síðustu 20 mínútur leiksins eftir að Cesc Fábregas fékk rautt spjald. Robert Firmino kom boltanum í netið fyrir Liverpool en var dæmdur rangstæður. Þetta er fyrsta tap Jürgens Klopps og lærisveina hans á undirbúningstímabilinu og fyrsta markið sem Liverpool fær á sig í sumar í fimm leikjum. Liverpool var búið að vinna Tranmere, Fleetwood, Wigan og Huddersfield án þess að fá á sig mark en markatalan í fyrstu fjórum leikjunum er 10-0. Ragnar Klavan, nýr miðvörður Liverpool, spilaði sinn fyrsta leik fyrir liðið í nótt og kom í veg fyrir annað mark Chelsea þegar hann kom stórhættulegri fyrirgjöf Willian frá markinu á síðustu stundu. Liverpool mætir næst AC Milan á laugardaginn.
Enski boltinn Tengdar fréttir Sakho virti ekki reglur Liverpool og fundar með Klopp eftir átta daga Óvíst er hvort franski miðvörðurinn Mamadou Sakho eigi framtíð fyrir sér á Anfield. 28. júlí 2016 08:00 Mest lesið Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Verstappen áfram hjá Red Bull Formúla 1 Atli og Eiður í KR Fótbolti Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Fótbolti Chicago Bears leita nýrra leiða til að tapa leikjum Sport FH-ingar kynntu Birki og Braga Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Tími fyrir endurheimt Sport Fleiri fréttir „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Amorim fullur sjálfstrausts á fyrsta blaðamannafundinum Meistararnir og Skytturnar missa út lykilmenn Lewandowski fékk ekki að fara til Man. Utd Ed Sheeran hjálpaði Ipswich að ná í leikmann rétt fyrir Taylor Swift tónleika Guardiola samdi til ársins 2027 Rannsókn á hegðun David Coote enn í fullum gangi Tuchel „stelur“ Hilario frá Chelsea og tekur hann inn í teymið Amorim vill að United fái Gomes aftur Martröð fyrirliða Chelsea heldur áfram Neville gagnrýnir Bandaríkjaför Rashford og Casemiro Sagður hafa tvo leiki til að bjarga starfinu Fær ekki að eyða í leikmenn í janúar Liverpool og Newcastle berjast um Mbeumo Fengu ljót skilaboð eftir óléttumynd: „Fyrirmunað að skilja þessi viðbrögð“ Guardiola framlengir við Man. City Klopp vildi fá Antony í stað Salah Tengdasonur Keane skoraði fyrir enska landsliðið Heimildaþáttaröð um lið Rooney og Guðlaugs Victors Landsliðskonurnar eiga von á barni saman Amorim fékk loksins að stýra æfingu hjá Man. United Sjá meira
Sakho virti ekki reglur Liverpool og fundar með Klopp eftir átta daga Óvíst er hvort franski miðvörðurinn Mamadou Sakho eigi framtíð fyrir sér á Anfield. 28. júlí 2016 08:00