Vardy með þrennu þegar meistararnir rúlluðu yfir Man City | Sjáðu mörkin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. desember 2016 19:15
Jamie Vardy skoraði þrennu þegar Englandsmeistarar Leicester City tóku Manchester City í karphúsið í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Lokatölur 4-2, Refunum hans Claudios Ranieri í vil. Leicester byrjaði leikinn af gríðarlegum krafti og eftir 20 mínútur var staðan orðin 3-0. Vardy kom Refunum yfir strax á 3. mínútu og aðeins tveimur mínútum síðar skoraði Andy King annað mark Leicester með góðu skoti. Vardy skoraði svo sitt annað mark og þriðja mark Leicester á 20. mínútu eftir sendingu frá Riyad Mahrez. Ótrúleg byrjun hjá Englandsmeisturunum og lærisveinar Peps Guardiola vissu ekki sitt rjúkandi ráð. Staðan var 3-0 í hálfleik. Man City spilaði betur í seinni hálfleik en Vardy gerði endanlega út um vonir gestanna þegar hann fullkomnaði þrennuna með skoti í stöng og inn úr þröngu færi á 78. mínútu. Aleksandar Kolarov skoraði glæsilegt mark með skoti beint úr aukaspyrnu á 82. mínútu og átta mínútum síðar lagði Serbinn upp mark fyrir varamanninn Nolito. Lokatölur 4-2, Leicester í vil. Með sigrinum komust meistararnir upp í 14. sæti deildarinnar. Man City er enn í 4. sætinu en liðið hefur tapað tveimur leikjum í röð með markatölunni 2-7.
Enski boltinn Mest lesið Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Sport Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Fleiri fréttir Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Sjá meira