Dúndurbyrjun Alexanders gaf tóninn í toppslagnum gegn Kiel Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. desember 2016 19:18 Alexander skoraði fimm mörk á fyrstu 20 mínútum leiksins. vísir/afp
Rhein-Neckar Löwen tyllti sér á topp þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta með sigri á Kiel, 26-29, í toppslag í Sparkassen-Arena í kvöld. Löwen er nú með 32 stig, tveimur stigum á undan Flensburg og Kiel. Flensburg á leik síðar í kvöld gegn Coburg 2000 og fer aftur á toppinn með sigri. Ljónin frá Mannheim voru skrefinu á undan í leiknum í kvöld en gekk illa að slíta sig frá strákunum hans Alfreðs Gíslasonar. Alexander Petersson hóf leikinn af miklum krafti, skoraði þrjú af fyrstu fimm mörkum Löwen og var kominn með fimm mörk eftir 20 mínútur. Löwen skoraði tvö mörk á síðustu 20 sekúndum fyrri hálfleiks og leiddi í hálfleik, 14-16. Kiel var aldrei langt undan og línumaðurinn Patrick Wiencek jafnaði metin í 20-20 þegar 20 mínútur voru eftir. Þá steig Löwen á bensíngjöfina, skoraði átta mörk gegn þremur og náði fimm marka forskoti, 23-28. Það bil náði Kiel ekki að brúa og Löwen fagnaði þriggja marka sigri, 26-29. Alexander og Guðjón Valur Sigurðsson skoruðu báðir fimm mörk fyrir Löwen, líkt og Andy Schmid. Þá átti markvörðurinn Andreas Palicka góðan leik gegn sínum gömlu félögum og varði 16 skot (40%). Wiencek og Domagoj Duvnjak skoruðu sjö mörk hvor fyrir Kiel.
Handbolti Mest lesið Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Sport Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Fótbolti Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Golf Salah sló þrjú met í dag Fótbolti Wagner með slitið krossband og úr leik út tímabilið Körfubolti „Við vorum taugaóstyrkir“ Fótbolti Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Enski boltinn Cullen stormaði út af blaðamannafundi Sport Útsalah á mörkum í Lundúnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Það er pílan Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli góður þegar Wisla Plock fór á toppinn Negla Elínar Klöru eitt af flottustu mörkum EM Kolstad vann toppslaginn Dana áberandi í síðasta leik ársins Leik Gísla og félaga í Magdeburg frestað vegna árásarinnar Rosalegur hæðarmunur á liðsfélögum íslensku strákanna Lærisveinar Guðmundar fara í frí með góðan sigur að baki Arnór frá Gumma til Arnórs Ósáttir Harðarmenn stofnuðu kröfu í heimabanka dómara Staðfesta 10-0 sigur ÍBV gegn Haukum Íslendingaliðið heldur áfram í undanúrslit Lærisveinar Guðjóns Vals úr leik í bikarkeppninni „Jólin eru ekki alveg eins afslöppuð“ Þyrfti kraftaverk til að Ómar yrði með á HM Þetta eru strákarnir sem spila fyrir Ísland á HM Snorri kynnti HM-hóp Íslands Lofaði konunni að flytja ekki til Íslands Framarar slógu út bikarmeistarana Afturelding í bikarúrslitin Dana Björg næstmarkahæst í sigri í toppslag Þórir gæti orðið þjálfari ársins í tveimur löndum „Ég er bara búinn að vera að jafna mig“ Stelpurnar hans Þóris tryggðu sér tvær milljónir hver Kvaddi á sama tíma og Þórir en sagði liðsfélögunum ekki frá því Guðmundur Bragi og félagar verða með á bikarúrslitahelginni Stjörnumenn fyrstir í bikarúrslitin Lærisveinar Gumma Gumm úr leik í bikarnum Bræðurnir góðir en Kolstad saknaði Sigvalda í tapi í Íslendingaslag Haukur og félagar unnu baráttuna um Búkarest Úrslitin í leik HK og Stjörnunnar standa Sjá meira