Handbolti

Sænsku stelpurnar voru 28-8 yfir í hálf­leik

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Það kemur fátt í veg fyrir að Kristín Þorleifsdóttir og félagar í sænska landsliðinu spili á næsta HM kvenna í handbolta.
Það kemur fátt í veg fyrir að Kristín Þorleifsdóttir og félagar í sænska landsliðinu spili á næsta HM kvenna í handbolta. Getty/Andrea Kareth

Það er óhætt að fullyrða það að úrslitin séu ráðin í einvígi Svíþjóðar og Kósóvó í umspili um laust sæti á heimsmeistaramóti kvenna í handbolta.

Fyrri leikurinn fór fram i kvöld og sænsku stelpurnar unnu 35 maka sigur, 51-16.

Sænska liðið var komið tuttugu mörkum yfir í hálfleik, 28-8. Þrátt fyrir það voru markhæstu leikmenn sænska liðsins bara með fjögur mörk í þessum ótrúlega fyrri hálfleik.

Hin sænsk-íslenska Kristín Þorleifsdóttir skoraði tvö mörk í fyrri hálfleiknum og lét þar við sitja. Markahæstar hjá sænska liðinu voru þær Clara Lerby og Nathalie Hagman með sjö mörk hvor. Átta leikmenn skoruðu fjögur mörk eða fleiri.

Seinni leikur liðanna fer fram á sunnudaginn kemur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×