Veiði

Met fallið í Svalbarðsá

Svalbarðsá er komin með 505 laxa í lok dags 29. ágúst og er því búin að slá metið sem sett var í fyrra en það var 504 laxar! Af þeim 505 löxum sem veiðst hafa eru 344 stórlaxar eða nálægt 70% veiðinar, sem verður að teljast mjög gott. Veitt er á tvær stangir það sem eftir lifir af veiðitímanum en veitt er til 16. September þannig að töluvert gæti ennþá veiðst í ánni. Hollið sem lauk veiðum í gær var ennþá að veiða lúsugar 80+ cm hryggnur og töluvert af nýgengnum smálaxi hefur veiðst seinust daga. Mynd að ofan: Fiskur 505, 75 cm hryggna.

Veiði

Allt er þegar þrennt er

Vatnsleysi hefur verið að hrjá marga laxveiðiána að undanförnu, sérstaklega á vestanverðu landinu. Veiðitölur í þar síðustu viku sögðu sína sögu. Vanir menn geta þó oft kroppa upp laxa, eins og dæmin sýna. Hér er pistill frá Hjálmari Árnasyni sem var með fastagenginu sínu í Laxá í Leirársveit.

Veiði

Færri tilkynningar um Sæsteinsugubit en í fyrra

Mun færri tilkynningar hafa verið um Sæsteinsugubit á laxfiskum núna í sumar miðað við í fyrra. Á tímabili höfðu menn af þessu miklar áhyggjur, þá sérstaklega í ljósi þess að talið var að þessi fiskur væri farinn að hrygna í miklum mæli hér við land. Ekki hafa fundist nein merki þess að einhver hrygning sé við landið en þetta þarf þó að rannsaka betur til að einhver niðurstaða fáist í málið.

Veiði

Laxinn kominn í vötnin í Svínadal

Við á Veiðivísi tókum smá bíltúr í gær og lá leið okkar meðal annars inní Svínadal. Það sem vakti furðu okkar er að það var engin að veiða við vötnin þrátt fyrir frábærar aðstæður. Og það sem meira er, laxinn er mættur!

Veiði

Lax sem meðafli makrílbáta

Það hefur verið kvittur á kreiki að undanförnu þess efnis að makrílveiðiskip með flottroll fyrir Austurlandi hafi verið að róta upp laxi í stórum haugum. Talað um allt að 30 tonn á einstökum skipum.

Veiði

Af Hítará á Mýrum

Hítaráin hefur í heildina verið nokkuð góð í sumar. Þó svo að laxinn hafi komið seinna en oft áður þá eru veiðitölur vel yfir meðaltali árinnar.

Veiði

Verður slegið nýtt met í Breiðdalsá?

Nú hafa 790 laxar veiðst í Breiðdalsá og ennþá góður tími framundan í ánni. Heildarveiðin í fyrra var met en þá veiddust 1178 laxar, en það má alveg fastlega reikna með að áin gæti farið yfir þá tölu því fyrstu tvær vikurnar í september hafa oft gefið flotta veiði.

Veiði

98 sm maríulax úr Svalbarðsá

Ungur veiðimaður að nafni Ryan Dunwoody veiddi lúsugann 98 cm Maríulax í Svalbarðsselshyl í Svalbarðsá í kvöld. Laxinn var tekin á Stoats tail tvíkrækju nr. 14 og var seinasta flugan í seinasta rekinu fimm mínútur í níu. Svalbarðsá er núna komin í 466 laxa en frekar hefur hægt á veiði undanfarna daga en í dag og í gær hafa veiðst nokkrir lúsugir eins árs fiskar.

Veiði

Fréttir af Krossá í Bitru

Krossá í Bitru er kominn uppí 65 laxa í sumar en heildarveiði í áni síðastliðin ár er í kringum 90-100 laxar. Áin hefur verið frekar vatnslítil undanfarið en það hefur rignt síðastliðna daga. Það vantar ennþá aðeins uppá svo vatnsstaða teljist góð en haustrigningar sjá vonandi um það.

Veiði

Sogið fullt af laxi

Stangirnar sem veiddu Ásgarð í gær og fyrradag lentu í stórveiði og lönduðu 22 löxum, þar á meðal stærsta laxi tímabilsins til þessa úr Soginu. Það voru öngvir aukvissar í Soginu í gær þegar að Ólafur Kr. Ólafsson og félagar voru við veiðar. Veiddu þeir einnig í fyrradag, alls í tvo daga, og gekk veiðin vel.

Veiði

Topp 10 listinn yfir aflahæstu árnar

Nú eru vikulegar tölur Landssambands Veiðifélaga komnar í hús og eins og alltaf er athyglisvert að sjá hvernig árnar eru að bera sig. Ansi rólegt er orðið yfir mörgum ánum á vesturlandi vegna sólríkra daga og vatnsleysis. Það er helst Haffjarðará og Langá sem halda sínu. Maðkurinn er kominn í Langá og það skilaði sér í flottri vikuveiði. Miðfjarðará er líka í góðum gír og í raun flestar árnar sem eru efstar á listanum í góðum málum.

Veiði

Lax og gæs í Hjaltadalsá

Holl vanra manna sem var að koma úr Hjaltadalsá fékk ellefu laxa og var helmingurinn stórlax. Að auki veiddust 22 bleikjur, flestar við Stífluna. Veiðimönnum sem kaupa veiðileyfi nú í haust fá aðgang að akri á Laufskálum til gæsaveiða. Um er að ræða um 10 hektara akur fyrir fjórar byssur og er aðgangurinn endurgjaldslaus séu menn með veiðileyfi í ánni.

Veiði

Stórlax á silungagræjur í Norðurá II

"Fór á fjallið í Norðurá um helgina og lauk veiðum á hádegi á mánudag. Við vorum í erfiðum aðstæðum fyrsta eina og hálfa daginn, þurrki, sól og heiðskíru með ána hratt minnkandi. Á sunnudagskvöldið dró fyrir sólu og nokkrir rigningardropar gerðu vart við sig. Fram að því höfðum við landað þremur fiskum og misst nokkra sökum þess að tökur voru frekar grannar. Búnaðurinn sem við vorum að nota var mjög “nettur“, því maður hafði á tilfinningunni að “venjulegur“ búnaður, þ.e. línuþyngdir 7 – 8 væru að valda full miklum skarkala í/á ánni.

Veiði

Síðasta holl með 234 laxa í Langá

Holl sem var að ljúka veiðum í Langá landaði 234 löxum á 4 dögum. Þetta var fyrsta holl í maðki eins og oft er kallað, og greinilegt að það hefur verið veisla á bökkum Langár. Laxinn er vel dreifður um ánna og voru menn að taka laxa alveg frá Strengjum á neðsta svæðinu og upp í Ármót sem er efsti staður.

Veiði

Stóra Laxá að vakna

Veiðmenn sem voru við veiðar á svæðum 1 og 2 í Stóru Laxá eftir hádegi í gær lönduðu 9 löxum á einni vakt. Eins heyrðum við í veiðimanni sem var á svæði 3 í morgun og náði 2 löxum á rúmum klukkutíma. Svo virðist sem efri hluti vatnasvæðis Hvítár/Ölfusár sé nú loks komið í gang eftir rólegt sumar.

Veiði

Missti 2 laxa í Elliðavatni

Við fengum póst frá veiðimanni sem var í Elliðavatni um helgina og ætlaði að klára sína vatnaveiði þar á þessu tímabili. það má segja að hann hafi heldur betur lent í skemmtilegheitum því hann setti í tvo laxa en því miður missti þá báða.

Veiði

Nýtt tölublað af Sportveiðiblaðinu komið út

Nýtt eintak af Sportveiðiblaðinu var að koma út og hefur blaðið sjaldan verið jafn fullt af skemmtilegum greinum og nú. Í blaðinu má annars finna viðtal við Bo Hall, eða Björgvin Halldórsson um veiðidelluna, veiðistaðalýsing í Blöndu, viðtal við feðgana Sólmund Einarsson og Arne Sólmundsson svo að nokkuð sé nefnt.

Veiði

Vatnsá og Skógará seinar í gang

"Við höfum verið að bíða eftir pistli frá Ásgeiri Ásmundssyni leigutaka Skógár og umsjónarmanni Vatnsár, en höfðum heyrt utan af okkur að veiðin hefði farið heldur seint í gang miðað við síðustu ár. Nú kom pistillinn og orðrómurinn kom á daginn.

Veiði

Lækkað verð á vatnasvæði Lýsu

SVFR hefur í samstarfi við leigutaka Vatnasvæðis Lýsu ákveðið að lækka verð veiðileyfa það sem af er sumri. Nú má vænta þess að sjóbirtingur fari að láta sjá sig á svæðinu.

Veiði

1100 laxar komnir upp fyrir Árbæjarfoss

Mikill lax er genginn upp fyrir Árbæjarfoss og þó nokkur lax mun vera kominn alla leið upp á Heiði / Bjallalæk, sem er efsta svæðið í Ytri Rangá. Mikill metnaður var settur í seiðasleppingar á efri svæðunum með það að markmiði að fá meira af laxi til að ganga upp á efri svæðin. Til að mynda var bætt við tveimur nýjum sleppitjörnum sleppt á svæðið og var 25.000 seiðum sleppt í hverja tjörn fyrir sig.

Veiði

Góð kvöldveiði í Kleifarvatni

Fín veiði hefur verið í Kleifarvatni síðustu daga hjá þeim sem veiða helst á kvöldin og í ljósaskiptunum. Þá hefur urriðinn og bleikjan gengið nær landi tekið vel agn veiðimanna hvort sem um flugu eða beitu er að ræða.

Veiði

Vegna virkjunarmála í Þjórsá

Nú þegar það er komið á borðið að það standi til að virkja neðri hluta Þjórsár hafa viðbrögð manna verið blendin. Það er þó eitt sem vekur upp furðu, og það er að Landsvirkjun hefur sagt að allt verði gert til að tryggja eins lítinn skaða hjá laxastofni Þjórsár með því að gera stiga fyrir niðurgöngulax og einhver lausn er víst rædd sem á að forða seiðunum frá túrbínunum.

Veiði

Góðar fréttir af sjóbirtingsslóðum

Sjóbirtingurinn er mættur í flest öll vatnsföll sem SVFK hefur uppá að bjóða í nágrenni Kirkjubæjarklausturs. Greinilegt að rigningar sem voru á svæðinu í byrjun ágúst hefur skilað inn fyrstu göngunum.

Veiði

Veiðivötn yfir 20.000 fiska múrinn

Á vef veiðivatna má sjá nýjustu upplýsingar um veiði í vötnunum. Þó veiðin sé minni en í fyrra fiskast ennþá vel og er svo komið að 20.000 fiskar hafa veiðst í vötnunum hingað til.

Veiði

Gæsaveiðin fer rólega af stað

Við höfum haft spurnir af nokkrum hópum gæsaveiðimanna sem fóru til veiða þann 20. ágúst þegar gæsaveiðin hófst. Flestir þeirra voru á Heiðagæs og voru menn að koma sér fyrir á morgun- og náttflugsstöðum um vestanvert hálendið.

Veiði

Gæsaveiðin hófst í dag

Veiðitímabil á grágæs og heiðagæs hefst laugardaginn 20. ágúst. Veiðar á grágæs og heiðagæs hafa verið að aukast hin síðari ár. Þegar um 90% af veiðiskýrslum eru komnar inn fyrir árið 2010 þá er skráð heildarveiði á grágæs um 46.000 fuglar og á heiðagæs um 17.000 fuglar. Til samanburðar má skoða árið 2009 þar sem veiðin var samkvæmt veiðiskýrslum tæpar 60.000 grágæsir og um 20.000 heiðagæsir. Líklegt er að afkomubrestur hafi orðið hjá báðum þessum stofnum þar sem slæmt veður framan af spillti varpi á einhverjum svæðum.

Veiði