Bakþankar

Yes, we can

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar

Forval fyrir forsetakosningar í Bandaríkjunum jafngildir jólunum fyrir áhugamenn um kosningar.

Bakþankar

Ný orð

Guðmundur Steingrímsson skrifar

Nú í vikunni áttaði ég mig á því að í öllum fréttum og víða annars staðar úti í þjóðfélaginu var fólk að nota orð sem ég skildi ekki. Þetta er orðið “skuldatryggingarálag”.

Bakþankar

Lömbin þagna

Bergsteinn Sigurðsson skrifar

Senn gengur í garð sá árstími þegar fjórtán ára þrautaganga margra foreldra er á enda og börnin ganga í fullorðinna manna tölu. Ungviðinu er smalað í kirkju eins og lömbum til slátrunar, sem er í vissum skilningi viðeigandi líking því úr kirkjunni snúa engin lömb; aðeins spengilegar ær og graðir hrútar. Barndómnum er formlega lokið.

Bakþankar

Kanasöknuður

Gunnar Hjálmarsson skrifar

Aldrei datt mér í hug að ég ætti eftir að segja þetta, en ég sakna Kanans á Miðnesheiði. Hann yfirgaf okkur með lágværu blístri, fánar voru dregnir niður og svo var þetta, sem hafði skipt þjóðinni í tvennt áratugum saman, bara búið.

Bakþankar

Veistu ekki hver er pabbi þinn?

Þórhildur Elín Elínardóttir skrifar

Sá ferill sem það tekur foreldra að velja nafn á ungann sinn getur verið langur og flókinn. Einu sinni var algengt að álfar og framliðnir vitjuðu nafns, sem var ágætt svo lengi sem viðkomandi hét ekki Hrolllaugur eða Skessujurt, en langt er síðan allt slíkt datt úr tísku.

Bakþankar

Blint réttlæti og heimskulegt

Karen Dröfn Kjartansdóttir skrifar

Þrír menn fæddir á árunum 1980, 1982 og 1984 voru um daginn dæmdir í héraðsdómi fyrir stórfelldasta smygl á fíkniefnum sem komið hefur upp á Íslandi í einstöku máli. Sá sem þyngstan dóm hlaut var dæmdur í níu og hálfs árs fangelsi, einn í sjö ára og fimm mánaða fangelsi og sá þriðji í sjö ára fangelsi. Þurfa þeir að afplána tvo þriðju hluta dómanna áður en þeir eiga möguleika á reynslulausn.

Bakþankar

Fallegur boðskapur

Davíð Þór Jónsson skrifar

Summa jarðar virðist hafa verið furðu jöfn í gegn um aldirnar. Fjöldi atómanna, sem hér eru á sveimi og mynda reikistjörnuna með öllu sem á henni er, hefur víst sveiflast sáralítið síðastliðin árþúsund.

Bakþankar

Tröllin hlæja ho, ho, ho

Gerður Kristný skrifar

Eitt sinn vann ég á vikublaði þar sem ég annaðist meðal annars opnu þar sem birtar voru aðsendar ljósmyndir.

Bakþankar

Rotin rómantík

Þórgunnur Oddsdóttir skrifar

Mikið skelfing er ég fegin að betri helmingurinn skuli ekki hafa asnast til þess að færa mér valentínusargjöf í gær. Tilbúin rómantík í hjartalaga súkkulaðiboxi hefði verið tilvalin leið til þess að eyðileggja fyrir mér annars ágætan fimmtudag enda vekur fátt hjá mér meiri viðbjóð en allt þetta væmna valentínusardót sem sjá hefur mátt í búðum undanfarna daga.

Bakþankar

Svona er ástin

Ólafur Sindri Ólafsson skrifar

Það er táknrænn dagur í dag. Valentínusardagur er notaður til að minna hluta af þjóðinni á að hún eigi maka og hinn hlutann á að hún eigi engan.

Bakþankar

Sölumenn óttans

Þórhildur Elín Elínardóttir skrifar

Stundum er fullyrt að með hækkandi aldri fylgi ákveðin fríðindi. Þá er ekki verið að vísa í forréttindi ellilífeyrisþega sem fá afslátt í sund og ókeypis rútuferðir í Bónus, heldur sérstaka tegund af sálarró sem kemur ekki sjálfkrafa en eykst samkvæmt kenningunni í réttu hlutfalli við fjölgandi hrukkur.

Bakþankar

Heiðarleiki

Karen Dröfn Kjartansdóttir skrifar

Ég var skínandi ánægð þegar Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson var kjörinn borgarstjóri á sínum tíma.

Bakþankar

Saklaust gæðablóð?

Þráinn Bertelsson skrifar

Tvisvar hef ég séð stjórnmálaflokka veikjast heiftarlega. Sá fyrri dó drottni sínum í sælli trú á framhaldslíf á bleiku skýi jafnaðarstefnu á rauðum sokkum.

Bakþankar

Hryllingurinn á hæðinni

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar

Fimm hundruð pör sækjast nú eftir því að fá að vera með í íslenskum sjónvarpsþætti, þar sem verkefnið er að innrétta hús innan ákveðins tímafrests.

Bakþankar

Auli

Bergsteinn Sigurðsson skrifar

Fyrir skemmstu tók ég mér frí frá vinnu á föstudegi, drakk kaffi á kaffihúsi og vafraði um netið. Ég notaði líka tækifærið til að skrifa útlenskum vini tölvupóst á ensku. Skyndilega tók ég eftir að tölvan var að verða rafmagnslaus.

Bakþankar

Stjórnmálaútlitið

Dr. Gunni skrifar

Sá sem fann upp á spekinni um að ekki skuli dæma bókina eftir kápunni var augljóslega að þvaðra út um vitlausan enda.

Bakþankar

Orðrómur deyr

Þórhildur Elín Elínardóttir skrifar

Hvort sem meðfæddri leti er um að kenna eða áunnu metnaðarleysi, þá sofnar í mér heilinn um leið og farið er að tala um peninga af alvöru og þekkingu.

Bakþankar

Elsku Páll

Karen Dröfn Kjartansdóttir skrifar

Þegar ég var tvítug festi ég kaup á forláta sjónvarpi í verslun sem seldi notuð tæki.

Bakþankar

Að flytja flugvöll

Þráinn Bertelsson skrifar

Með nýjum og yfirveguðum borgarstjóra er í bili búið að skrúfa fyrir hina flóknu umræðu um hvert skuli flytja Reykjavíkurflugvöll – hvort fara skuli með flugvöllinn upp á heiðar eða út í sjó eins og ýmsir stórgáfaðir menn hafa gert að tillögum sínum.

Bakþankar

101 Reykjavík

Davíð Þór Jónsson skrifar

Borgarstjórinn í Reykjavík er með læknisvottorð upp á að hann ráði við starfið sem hann gegnir. Ég veit ekki til þess að aðrir borgarfulltrúar geti státað af því.

Bakþankar

Ekki bara róló

Gerður Kristný skrifar

Í tíu ár bjó ég á Sólvallagötu. Þegar ég flutti þangað voru fjórar verslanir í nágrenninu; lítil matvörubúð á horni Bræðraborgarstígs og Ásvallagötu og önnur á horni Bræðraborgarstígs og Vesturgötu.

Bakþankar

Þvílík vitleysa

Þórgunnur Oddsdóttir skrifar

Ég er ekki af þeirri kynslóð sem ólst upp í stöðugum ótta við atómbombuna. Þegar ég var í grunnskóla höfðu annarskonar heimsendaspár tekið við og fólk var farið að trúa því að mengun af mannavöldum myndi tortíma öllu lífi innan skamms.

Bakþankar

Rottumaðurinn

Ólafur Sindri Ólafsson skrifar

Sigmund Freud lýsti eitt sinn samskiptum sínum við sjúkling sem hann nefndi Rottumanninn.

Bakþankar

Afvegaleidd umræða

Þórhildur Elín Elínardóttir skrifar

Tæpast hefðu margir spáð því fyrirfram að íslenska þjóðin gæti haft jafn stórkostlegar áhyggjur af heilsufari hins geðþekka heimilislæknis sem nú er í tímabundnu leyfi frá praktík.

Bakþankar

Náðhús Reykjavíkur

Þráinn Bertelsson skrifar

Í þróuðum löndum ríkir pólitískur stöðugleiki vegna þess að almenningur hefur lært að láta stjórnmálamenn í friði og skiptir sér ekki af því sem þeir taka sér fyrir hendur. Stöðugleiki merkir „óbreytt ástand án framfara“ og byggist á gagnkvæmu samkomulagi um að hvor aðili um sig láti hinn njóta vinnufriðar.

Bakþankar

Af skríl

Guðmundur Steingrímsson skrifar

Á fimmtudaginn varð ég vitni að því þegar fólk á öllum aldri streymdi inn í Ráðhús Reykjavíkur af fúsum og frjálsum vilja til þess að mótmæla, af augljósum ástæðum, fyrirvaralausum meirihlutaskiptum.

Bakþankar

Hættu nú

Bergsteinn Sigurðsson skrifar

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson var ekki mjög góður borgarstjóri. Að minnsta kosti ekki farsæll. Kannski hefði hann átt að segja skilið við stjórnmál eftir að hann hrökklaðist úr embætti, í stað þess að þráast við og leiða áfram hóp sem vill ekkert með hann hafa.

Bakþankar

Handrukkarar lýðræðisins

Dr. Gunni skrifar

Lærdómur síðustu daga er þessi: Handrukkarar, þótt þeir láti stórkarlalega, eru vælandi vesalingar inni við beinið sem brotna saman í vörslu lögreglunnar. Stjórn­málamenn, þótt þeir láti eins og heilagir fulltrúar almennings, eru upp til hópa tækifærissinnaðir lúsablesar sem gera hvað sem er til að moka undir rassgatið á sjálfum sér.

Bakþankar

Dásamlegu harðindi

Þórhildur Elín Elínardóttir skrifar

Stöku foreldri segist aldrei hafa þurft að heyja baráttu við svæfingar. Það væri gróft að væna fólk um lygimál, en að minnsta kosti er það trúlega blessunarlega minnislaust. Ef til vill hefur náttúran þennan háttinn á, að þurrka jafnóðum út af harða diskinum allt bröltið og umstangið sem fylgir foreldrahlutverkinu svo fólk missi nú ekki áhugann á að annast litlu grísina.

Bakþankar

Komdu fagnandi, kreppa!

Davíð Þór Jónsson skrifar

Nýlega bárust fréttir af því að reykvísk athafnakona hefði tapað morði fjár á fjármálamarkaði. Hún bar sig afar aumlega yfir því að hafa tapað hundruðum milljóna sem hún fékk lánaðar til að nota í fjárhættuspil.

Bakþankar