Bakþankar

Æðruleysi og þolinmæði

Karen D. Kjartansdóttir skrifar

Í æsku minni á Akranesi var mér sagt að íþróttafélagið ÍA væri besta lið í heimi. Skagamaðurinn amma Lóa sagði mér stolt frá því að faðir hennar hann Ingólfur hefði verið einn af stofnendum þessa liðs.

Bakþankar

Af bláum kjólum

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar

Þegar að Bill Clinton, sá ágæti maður, varð uppvís að ástarleikjum við unga konu í fallegum bláum kjól þurfti hann í kjölfarið ekki bara að glíma við reiði eiginkonunnar.

Bakþankar

Einkunnir í tossabekk

Þráinn Bertelsson skrifar

Miðað við að það sé hlutverk ráðherra að vinna sér inn virðingu hjá þjóð sinni fyrir vinnusemi, hugmyndaauðgi, manngæsku, verklagni, heiðarleika og fleiri kosti er það fræðandi hjá fyrirtæki eins og Capacent að birta vorprófseinkunnir úr Skóla lífsins fyrir þá sem nú stjórna landinu, um sama leyti og próflestrarhrina brestur á hjá skólafólki.

Bakþankar

Ekki gott

Guðmundur Steingrímsson skrifar

Í Fréttablaði gærdagsins var a.m.k. tvennt sem fékk mig til að dæsa yfir ruglinu. Annað var frétt um ungan mann sem var beittur harðræði af lögreglu við bensínsstöðina á dögunum. Slagur þessa manns, sem er stór og stæðilegur, við lögreglu birtist landslýð í beinni útsendingu.

Bakþankar

Þegar Musso var málið

Bergsteinn Sigurðsson skrifar

Munið þið þegar þeirri skrítnu hugmynd skaut niður á Íslandi að enginn væri maður með mönnum nema hann eignaðist straumlínu­­lagaðan jeppa sem hét hinu af­spyrnu kjánalega og óþjála nafni SsangYong Musso?

Bakþankar

Dagur þakklætis

Dr. Gunni skrifar

Í dag er góður dagur til að þakka fyrir þá dásamlegu tilviljun að þú fæddist í besta landi í heimi. Að þú sért hluti af hamingjusömustu þjóð í heimi og hafir ítrekað borið gæfu til að kjósa þér bestu leiðtoga alheimsins.

Bakþankar

Hressandi kreppa

Þórhildur Elín Elínardóttir skrifar

Þótt samúð með vörubílstjórum hafi runnið út í sandinn fer ekki hjá því ópin um eldsneytishækkun hafi orðið bensín á dýrtíðarhræðsluna. Sniðugt, ekki satt? Hroðaleg verðbólga ekki lengur bara bráðum heldur núna.

Bakþankar

Allt er í allra besta lagi

Karen Dröfn Kjartansdóttir skrifar

Það skal alveg viðurkennast að sá skáldskapur sem ég setti niður á blað sem barn hlaut aldrei náð fyrir augum dómnefnda sem verðlaunuðu kvæði eftir börn á níunda og tíunda áratugnum.

Bakþankar

Ofbeldi og fasismi

Þráinn Bertelsson skrifar

Árið 1209 höfðu „rétttrúaðir" kaþólikkar nógu að sinna í krossferð gegn „villutrú" Kaþara í Suður-Frakklandi. Þar kom að krossfaraherinn sat um Beziersborg, eitt höfuðvirkja Kaþara.

Bakþankar

Timburmenn mótmælanna

Þórgunnur Oddsdóttir skrifar

Ég hef aðeins einu sinni á ævinni átt frumkvæði að mótmælaaðgerðum. Ætli ég hafi ekki verið svona þrettán ára, alla vega nógu gömul til að finnast á mér brotið og of ung til að hugsa dæmið til enda.

Bakþankar

Hommahasar

Ólafur Sindri Ólafsson skrifar

Þeirri staðreynd var vandlega haldið leyndri fyrir Íslendingum á sínum tíma að Júróvisjón-keppnin væri risavaxin hommaárshátíð. Hommar voru enda enn álitnir kynvillingar, ekki síst af því hégómlega fólki sem í alvöru hafði metnað fyrir því að vinna söngvakeppnina.

Bakþankar

Ást við fyrstu sýn

Þórhildur Elín Elínardóttir skrifar

Þrátt fyrir allskyns uppsteyt í garð dæmigerðrar kynjaskiptingar hef ég með sóma haldið uppi merkjum kvenlegs yndisþokka með því að vera átakanlega seinfær þegar kemur að vélbúnaði.

Bakþankar

Spegillinn

Karen D. Kjartansdóttir skrifar

Árið 2003 voru boðaðar skipulagsbreytingar innan Ríkisútvarpsins í framhaldi af tölvupósti Markúsar Arnar Antonssonar þáverandi útvarpsstjóra til samstarfsmanna.

Bakþankar

Óheppileg umræða!

Þráinn Bertelsson skrifar

Mikil opinber umræða getur verið óheppileg, skapað óraunhæfar væntingar og þar með haft neikvæð áhrif.“ Geir H. Haarde, formaður Flokksins og forsætisráðherra Íslands, á fundi með Samtökum atvinnulífsins 18. apríl 2008.

Bakþankar

Bensín og brauð

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar

Ég hlustaði á merkilegt spjall hjá dætrum mínum á leið heim úr leikskólanum um daginn þar sem þær sátu saman í aftursæti bílsins. Systurnar eru þriggja og sex ára.

Bakþankar

Drama

Guðmundur Steingrímsson skrifar

Þegar ég sat yfir kaffibolla í vikunni og hlustaði í enn eitt skiptið á umræður í sjónvarpi um skort á lausafjármagni bankanna varð mér skyndilega nóg um.

Bakþankar

Rónaspónar

Bergsteinn Sigurðsson skrifar

Þar sem miðborg Reykjavíkur var orðin hættuleg að mati nítjándualdargötumyndarmannsins og ekki þverfótað fyrir sprautunálum og sjónvarpsvænum sveðjumorðingjum á Laugavegi, var ekki seinna vænna en borgaryfirvöld efndu til ímyndarherferðar og hreinsunarátaks.

Bakþankar

Pabbi minn, Hugh Hefner

Dr. Gunni skrifar

Þar sem ég sveimaði um Alnetið, eins og of oft vill gerast, í algjöru innihalds- og tilgangsleysi, rakst ég á myndir úr afmæli Playboy-kóngsins Hughs Hefners.

Bakþankar

Öskubuska Skallagrímsson

Þórhildur Elín Elínardóttir skrifar

Mamma, ég er að hugsa um það þegar ég verð stór," sagði fimm ára dóttir mín áhyggjufull um daginn.

Bakþankar

Rauða hættan

Karen Dröfn Kjartansdóttir skrifar

Okkur Íslendingum þykir ægilega vænt um nágranna okkar í Færeyjum, enda eru þeir okkar eina tækifæri til að sýna stóra bróðurs stæla í garð annarra þjóða.

Bakþankar

Leyfið bönkunum að koma til mín

Þráinn Bertelsson skrifar

Leyfið bönkunum að koma til mín og bannið þeim það ekki! Að vandlega athuguðu máli og hafandi ráðgast við fjölskyldu mína hef ég ákveðið að bjóðast til að losa þjóðina á einu bretti við vandamálið sem hangir yfir okkur öllum.

Bakþankar

2020

Davíð Þór Jónsson skrifar

Árið er 2020. Ég átti erindi austur á land og er á leiðinni heim til höfuðborgarinnar með flugi. Ég geng frá borði í Vatnsmýrinni um rana beint inn í nýlega, glæsilega flugstöð sem af einhverjum ástæðum gengur ekki undir nafninu flugstöð heldur „samgöngumiðstöð“.

Bakþankar

Með trukki en líka dýfu

Gerður Kristný skrifar

Þegar hátt bensínverð og ósanngjarnar vinnureglur tóku að renna flutningabílstjórum til rifja gerðu þeir sér lítið fyrir, lögðu stóru trukkunum sínum úti á mikilvægum umferðargötum á annatíma og tepptu þar með alla umferð.

Bakþankar

Út(sáð)rás

Ólafur Sindri Ólafsson skrifar

Þriðji hver gestur klámsíðu er kona og konur eru miklu líklegri en karlar til að stunda raunverulegt kynlíf með manneskju sem þær kynnast á netinu. Bæði í erótískum og klínískum tilgangi. Kynferðisleg þjónusta við konur er nýjasta netbólan.

Bakþankar

101 Kalkútta

Þórhildur Elín Elínardóttir skrifar

Ein af klisjunum sem við þorpsbúar yljuðum okkur lengi við var að þrátt fyrir allt ættum við besta vatn í heimi og hreinustu höfuðborgina. Vorum roggin gagnvart útlendingum sem hingað slæddust enda vóg hreinleikinn upp á móti því hversu allt var - líka þá - rosalega dýrt.

Bakþankar

Vísdómsorð stripparans

Karen Dröfn Kjartansdóttir skrifar

Eitt sinn tafðist ég á flugvelli í sólarhring. Þótt vistin hefði verið slæm leiddist mér lítið því fólkið sem beið með mér var hvað öðru skemmtilegra. Minnisstæðastar eru mér samræður sem ég átti við guðsmann úr Hvítasunnusöfnuðinum og laglega stúlku sem kynnti sig sem atvinnudansara, sem höfðaði til kynferðislegra hvata fremur en listrænna. Upphófust skemmtilegar samræður um trúmál og klám.

Bakþankar

Breytingaskeið

Þráinn Bertelsson skrifar

Trúlega er ég að ganga í gegnum einhvers konar breytingaskeið enn einu sinni - en þau eru orðin fleiri en hægt er að telja upp í stuttum bakþanka. Líkamlega eru þau svipuð hjá mér og flestum öðrum. Það eru hin andlegu breytingaskeið sem ég er smeykur um að séu fleiri en gengur og gerist.

Bakþankar

Ný kynni af fyrstu ástinni

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar

Eyjan birti frétt fyrir nokkru um hlut foreldra í sænskum bókmenntum. Mömmur í sænskum bókmenntum eru hálfvonlausar, sjálfhverfar og taugaveiklaðar, eða látnar. Minna var sagt um stöðu pabbanna, en í sjálfu sér segir það heilmikið að um þá hafi ekki einu sinni verið fjallað.

Bakþankar

Einkaþota

Guðmundur Steingrímsson skrifar

ÉG á vin sem fór einu sinni til útlanda í einkaþotu, starfs síns vegna. Þvert á hugmyndir mínar á þessum tíma um að í einkaþotum væri einstaklega þægilegt að vera og að stólar væru þar rúmgóðir og hægt að teygja úr sér og skeggræða andans mál í rólegheitum, tjáði þessi vinur minn mér að lokinni ferðinni að einkaþotan hefði í raun verið einstaklega óþægileg.

Bakþankar