Fastir pennar

Fjögur ár í viðbót?

Það skyldi þó ekki fara svo að ríkisstjórnin héldi velli í haust og við fengjum fjögur ár í viðbót af Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum?

Fastir pennar

Gráðugir bankar, vaxtamunur, vandi óánægjuframboða

Mér þykir mikilvægt að umræðan um okrið hér á landi lognist ekki út af. Það er ágætt að menn séu farnir að beina sjónum sínum að bönkunum, þeir hafa skotið sér bak við að mikið af ofurhagnaðinum komi frá útlöndum – en er endilega víst að það sé satt?

Fastir pennar

Gat á stjórnmálamarkaðinum

Hér er spurning: Hvað eiga svo ólík fyrirbrigði sem íslenska þjóðkirkjan, Ríkisútvarpið og sala ríkisins á bjór og léttvíni sameiginlegt? Svar: Um tveir þriðju þjóðarinnar vilja losa um tök hins opinbera á þessari starfsemi með einum eða öðrum hætti.

Fastir pennar

Eiga eða leigja?

Heimilin um landið hafa á löngum tíma komið sér upp einfaldri reglu um húsnæðismál: til langs tíma litið er betra að eiga en leigja. Átta af hverjum tíu íslenzkum fjölskyldum búa undir eigin þaki; hinar búa í leiguhúsnæði.

Fastir pennar

Fuglalíf á Tjörninni, framboð aldraðra, handbolti

Nú erum við Kári búnir að ná einu helsta baráttumáli okkar í gegn. Við fögnum því náttúrlega. Við höfum um árabil tuðað yfir því að ekkert ungviði komist á legg á Reykjavíkurtjörn – þannig hefur það verið ár eftir ár. Eitt árið töldum við að átta andarungar hefðu lifað...

Fastir pennar

Líkur á stjórnfestu minnka

Margt bendir til að flokkakerfið sé að taka verulegum breytingum. Í áratugi hafði Framsóknarflokkurinn þá lykilstöðu að geta að öðru jöfnu valið hvort myndaðar voru ríkisstjórnir til vinstri eða hægri. Nýsköpunin og Viðreisnin voru undantekningar þar frá. Nú sýnist Samfylkingin vera að taka þetta rými á vettvangi stjórnmálaátakanna.

Fastir pennar

Álsýn - tálsýn

Það er margt sem bendir til þess að kosningar í vor verði afdrifaríkari fyrir framtíð þessarar þjóðar, en nokkrar kosningar á undanförnum áratugum. Haldi núverandi stjórnarflokkar velli er enginn vafi á að stóriðjustefnunni verður haldið áfram af fullum krafti í anda þeirra viljayfirlýsinga sem þegar hafa verið undirritaðar af iðnaðarráðherra.

Fastir pennar

Lilló leggur út af Lobba

Viðtal mitt við Guðmund Ólafsson hagfræðing í síðasta Silfri hefur vakið mikla athygli – en kannski ekki nóga. Ég er eiginlega þeirrar skoðunar að heill stjórnmálaflokkur gæti byggt kosningabaráttu sína á málflutningi hans...

Fastir pennar

Veislugleði, öfund og leiðindi

Ólafur Ólafsson í Samskipum segir í Blaðinu í dag að hann hafi svosem vitað hvernig þjóðin myndi bregðast við innflutningi hans á söngvaranum Elton John – með öfund og leiðindum. Af þessu tilefni ætla ég að sýna eina frægustu fréttamynd síðari ára, úrklippu úr Morgunblaðinu...

Fastir pennar

Vítavert gáleysi

Hér er ekki um meðvitaða mismunun að ræða, miklu frekar gáleysi,” sagði Eggert Magnússon, fráfarandi formaður Knattspyrnusambands Íslands, í viðtali í Morgunblaðinu á sunnudaginn og hitti þar svo sannarlega naglann á höfuðið.

Fastir pennar

Beðið eftir ríkissáttasemjara

Kennarar eru upp til hópa þolinmóðir og umburðarlyndir. Óþolinmæði gefst enda illa í samskiptum við nemendur. Jafnframt er starfið ákaflega skemmtilegt og gefandi en að sjálfsögðu mjög krefjandi, eins og flest skemmtileg störf reyndar eru.

Fastir pennar

Gjafmildi, Elton John, handbolti, Evrovision, þjóðarkarakter

Ólafur í Samskip slær öll met í því að gefa peninga til góðgerðarmála og menningar. Það er samt skrítið að tilkynna þetta sama dag og hann lætur fljúga með Elton John hingað í einkaþotu til að spila í partíi. Frá þessu var sagt í fréttum Stöðvar 2. Þeir náðu meira að segja myndum af Elton...

Fastir pennar

Alræði, þorrablót, málþóf

Tilgangurinn var að fjölga Rúmenum. Afleiðingin var geysileg óhamingja, fleiri svangir munnar að metta mitt í fátæktinni, ótrúlegur fjöldi barna sem enginn kærði sig um – lokapunkturinn voru svo hin skelfilegu munaðarleysingjahæli sem voru uppgötvuð eftir fall Ceausecuhjónanna...

Fastir pennar

Byrgið, kvenskörungar, Skuggahverfi, stjórnarskrá

Það er dálítið erfitt að vera í bendileik með Byrgið – að finna einhvern sérstakan sökudólg í kerfinu. Menn hafa staðnæmst við Birki Jónsson, en ég held að hann muni sleppa með skrekkinn. Ég man ekki betur en að flestir pólitíkusar og mestöll kjaftastéttin hafi tekið andköf af hneykslun...

Fastir pennar

Mýrargatan, bleik blöð, Kaupthing

Svæðið í kringum Mýrargötuna er eitt hið ljótasta í Reykjavík – raunar er mestöll norðurströnd borgarinnar til skammar. Afsprengi endalausra skipulagsslysa. Ég verð líka að játa að ég hef aldrei séð neinn sjarma við Slippinn – og er þó alinn upp vestur í bæ...

Fastir pennar

Við borgum ekki!

Frægt leikrit eftir Nóbelsverðlaunahafann Dario Fo heitir Við borgum ekki. Ég velti fyrir mig hvort sé komið að þeim punkti að við Íslendingar eigum að hætta að borga. Við búum við langhæsta matarverð í heiminum...

Fastir pennar

ESB og reglur þess

Evrópusambandið breytir ekki reglum sínum þegar ný ríki ganga í bandalagið. Samningaviðræður ganga út á hvernig og á hve löngum tíma ný ríki geti aðlagast þeim reglum sem gilda. Þá held ég að óhætt sé að segja að við inngöngu nýrra ríkja hafi oftast orðið til nýjar reglur. Dæmi þar um eru reglur um hinn svokallaða heimskautalandbúnað sem urðu til þegar Finnar og Svíar gengu í sambandið.

Fastir pennar

Skotgrafir ekki rétta umgjörðin

Krónan og evran voru áberandi í umræðu síðustu viku. Sú umræða fór á köflum fram úr sjálfri sér og varð fyrir vikið að einhvers konar bráðaumræðu sem lítil efni eru til. Kveikja þessarar umræðu var orðrómur um að Kaupþing hygðist gera upp og skrá eigið fé sitt í evrum.

Fastir pennar

Viðvörun til ríkisstjórnarinnar vegna RÚV

Breytingin sem felst í að gera Ríkisútvarpið að hlutafélagi mun leiða til málaferla vegna árekstrar við Evrópureglur um samkeppnismál. Harkalegt álit Samkeppniseftirlitsins beinlínis kallar eftir því að keppinautar RÚV hefji slíkt mál.

Fastir pennar

Barbabrella í Háskólanum

Markmiðið að koma Háskóla Íslands í hóp hundrað bestu háskóla í heimi er auðvitað brandari. Svona eins og fíkniefnalaust Ísland árið tvö þúsund. Að halda svona fram er svo sjálfhælið að maður fer hjá sér. Þetta er dvergháskóli, frekar snauður af fé, hæfileikum, hefð og bókakosti...

Fastir pennar

Hvers vegna?

Einhverra hluta vegna hafa stjórnarflokkarnir sammælst um að rjúfa þá sæmilegu sátt sem verið hefur um Ríkisútvarpið. Ríkisstjórnin hefur misboðið þeim sem vilja standa vörð um menningarlegt útvarp á vegum ríkisins. Um leið hefur hún gefið hinum langt nef sem vilja tryggja jafnræði á almennum markaði útvarpsstarfsemi.

Fastir pennar

Evran og hagstjórn II

Í kennslubók sem ber heitið „Jón Sigurðsson og hugmyndir 19. aldar. Saga fyrir unglingastig grunnskóla“ og var gefin út af Námsgagnastofnun árið 2000, birtist eftirfarandi setning á blaðsíðu 45: „Meirihluti Íslendinga virðist á því að það yrði til mikilla hagsbóta að ganga í Evrópusambandið, en stjórnvöld eru ósammála því.“

Fastir pennar

Utanríkismál á dagskrá

Mikill kosningaskjálfti virðist kominn í íslenska stjórnmálaflokka og ýmsum brögðum beitt til að marka sér sérstöðu. Allt er þetta brölt óskaplega klassískt og fyrirsjáanlegt sem er miður því að ýmis tíðindi gætu gerst í pólitíkinni á árinu 2007.

Fastir pennar

Bush grætur, hvalkjöt, skrítinn dómsdagur, könguló

Hvaða kenndir vekja myndir af Bush grátandi? Samúð? Varla? Ekki þegar maður hugsar um afleiðingarnar af gerðum hans, ónýtt land þar sem áður ríkti einræði en þó einhvers konar stöðugleiki, fjölda látinna þar, heilan heimshluta sem er í uppnámi...

Fastir pennar