Fastir pennar

Að eiga kökuna og éta hana

Skoðanakönnun Fréttablaðsins í gær felur í sér tvær afgerandi pólitískar vísbendingar: Í fyrsta lagi sveifla frjálslyndir til sín fylgi frá Framsóknarflokki og vinstri grænum. Í öðru lagi er meirihluti ríkisstjórnarflokkanna fallinn.

Fastir pennar

Rousseau í stað Marx?

Vofa Rousseaus gengur ljósum logum á Íslandi. Það liggur í hlutarins eðli, að erfitt er að rökræða við hana. Þó má benda á, að sögurnar fögru af frumbyggjum Vesturheims, sem bjuggu í sátt við náttúruna, eru goðsagnir. Þeir útrýmdu dýrum og brenndu skóga. Það var ekki heldur vegna hótana Sigríðar í Brattholti, sem horfið var frá virkjun Gullfoss, heldur sökum áhugaleysis erlendra fjárfesta.

Fastir pennar

Merkilegt fólk úr Eyjum

Í dag var Sigfús Johnsen borinn til grafar. Hann var bróðir Önnu Svölu og Ingibjargar Johnsen, af þeirri fjölskyldu sem mér hefur þótt hvað stórbrotnust í lífinu...

Fastir pennar

Breytingar

Eins og menn sjá hafa orðið miklar breytingar hér á Vísi. Ég tel að þetta muni vera til bóta, gamla útlitið var þunglamalegt og með því fylgdi talsvert af efni sem var orðið úrelt...

Fastir pennar

Sigur fyrir heiminn

Það tók Bush og félaga innan við sex ár að rústa ímynd Bandaríkjanna. Skal engan undra þegar afrekaskráin er skoðuð: fullkomið klúður við stríðsrekstur og uppbyggingu Íraks, pyntingar í Abu Graib og Guantanamo, brot á Genfarsáttmálanum, persónunjósnir innanlands og fangaflutningar CIA milli leynifangelsa í austanverðri Evrópu.

Fastir pennar

Vatnaskil fyrir vestan

Repúblikanar hafa ráðið lögum og lofum í Bandaríkjunum síðan 1994, þegar þeir náðu meiri hluta í báðum deildum Bandaríkjaþings. Demókratinn Bill Clinton hafði þá verið forseti í tvö ár, og repúblikanar snerust gegn honum og málstað hans af mikilli hörku og reyndu án árangurs að bola honum frá völdum fyrir það eitt að segja ósatt um einkamál.

Fastir pennar

Atvinnustjórnmál og hugsjónafólk

Grasrótarhreyfing - eða eigum við ekki að kalla hana það - sem nefnist Framtíðarlandið er að íhuga að bjóða fram til Alþingis. Þetta er náttúrlega ein leið til að hræða pólitíkusana...

Fastir pennar

Margbreytileg samfélag

Einstakir þingmenn Frjálslynda flokksins virðast ætla að freista þess að höfða til kjósenda með því að taka upp innflytjendamál á tilfinningalegum nótum meðal annars með því að höfða til fordóma og ótta við hið óþekkta.

Fastir pennar

Ennþá dýrari sérdrægni

Þetta er líka ein af ástæðum þess að umhverfismál hafa þokast enn ofar á dagskrá evrópskra stjórnmála. Hlýnun jarðar er þegar farin að valda pólitískum vandamálum sem virða ekki landamæri.

Fastir pennar

Hugarórar Samfylkingarinnar

Hér er fjallað um vonlitla drauma samfylkingarfólks um að komast í ríkisstjórn, gamla Lækinn sem Björn Ingi vill opna á nýjan leik, pólitískt manífestó Kristrúnar og úrið sem er týnt...

Fastir pennar

Meiri þjónusta fyrir sömu krónur

Heilbrigðismál eru hvarvetna meðal höfuðviðfangsefna í stjórnmálum. Á fáum sviðum öðrum er meira reiptog um skattpeningana. Af sjálfu leiðir að um þessi efni takast menn á í pólitík.

Fastir pennar

Að þekkja takmörk sín

Það er ljóst að þetta fólk er búið að vera svo lengi við völd að það hefur misst sjónar á þjónustuhlutverki sínu og tilgangi laga og stjórnsýslu, hafi þess háttar einhvern tímann verið því ljóst!

Fastir pennar

Hárið á Saddam

Hér er fjallað um dauðadóminn yfir Saddam, áhrif sem innflytjendapólitík Frjálslyndra getur haft á íslensk stjórnmál, Samfylkinguna og náttúruvernd, sjónvarpsþætti um sögu Íslands, en loks er vikið að einkennilegu suði í húsinu...

Fastir pennar

Stofnanasam-starf í vörn

Árlegt þing Norðurlandaráðs er nú nýafstaðið, en það fór fram að þessu sinni í Kaupmannahöfn. Norðurlandaráð og Norræna ráðherranefndin eru meginstoðir hins pólitíska, formlega hluta norræns samstarfs.

Fastir pennar

Sundrung Sjálfstæðisflokksins

Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík kemur lemstraður og blóðrisa út úr prófkjöri sínu. Þar sáðu sigurvegarar til sundrungar sem líkleg er til að kalla fram langvinn átök einsog þau sem áratugum saman skóku flokkinn milli Gunnars Thoroddsen og Geirs Hallgrímssonar. Í eftirleik prófkjörsins ganga harðar ásakanir um óheiðarleg vinnubrögð sem kunni að hafa ráðið úrslitum.

Fastir pennar

Klofnar Frjálslyndi flokkurinn?

Hér er fjallað um skoðanir þremenninga úr Frjálslynda flokknum á innflytjendamálum, hinn bráðheppna frambjóðanda Jón Gunnarsson, prófkjör Samfylkingarinnar í þremur kjördæmum og erkihaukinn Richard Perle sem hefur snúið baki við George Bush...

Fastir pennar

Aldraðir í forgang

Það skiptir miklu máli hvernig skatttekjum ríkisins er ráðstafað. Í því ljósi er nauðsynlegt fyrir stjórnvöld að taka ábendingar Dagbjartar Þyrí Þorvarðdóttur, hjúkrunarfræðings og fyrrverandi hjúkrunarforstjóra Hrafnistuheimilanna, í forsíðufrétt Fréttablaðsins í gær alvarlega.

Fastir pennar

Íslandssöguna á filmu

Ég las fyrir löngu þessa litlu gamansögu um íslensk og sovésk stjórnmál: „Frá Moskvu hafa þær fréttir borist að Stalín æði um innan Kremlarveggja, uppfullur af mikilmennskubrjálaði og ímyndi sér að hann sé Vilhjálmur Þór."

Fastir pennar

Af hverju vilja sjálfstæðismenn ekki konur?

Þegar rætt er um stöðu kynjanna innan stjórnmálaflokka á Íslandi þá er hún að mörgu leyti býsna góð. Í þremur stjórnmálaflokkum, Vinstrihreyfingunni-grænu framboði, Samfylkingu og Framsóknarflokki, er forystusveitin þéttskipuð konum.

Fastir pennar

Óljóst markmið Þorsteinn Pálsson skrifar

Um nokkurn tíma hefur staðið til að ríkissjóður keypti eignarréttindi Reykjavíkur og Akureyrar í Landsvirkjun. Nú hafa verið undirritaðir samningar þar að lútandi. Í tíð fyrri borgarstjórnarmeirihluta strönduðu samningar á andstöðu Vinstri græns.

Fastir pennar

Sigurstranglegur listi

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík um síðustu helgi skilaði sigurstranglegum lista. Geir H. Haarde fékk afdráttarlausa traustsyfirlýsingu. Hann hefur staðið sig vel og lagað flokkinn átakalaust að nýjum aðstæðum. Hver maður hefur sinn stíl og hver tími sinn mann.

Fastir pennar

Ef bankarnir færu úr landi

Gögnum Seðlabankans um erlend eignakaup innlendra aðila og um fjárstreymi að og frá landinu yfirleitt er með líku lagi ábótavant. Skekkjan í greiðslujafnaðarbókhaldi Seðlabankans fyrir 2005 nemur 6 prósentum af landsframleiðslu, en svo mikil bókhaldsskekkja er fáheyrð í seðlabankareikningum þróaðra ríkja.

Fastir pennar

Norðurlöndin

Þing Norðurlandaráðs hefur staðið yfir í Kaupmannahöfn undanfarna daga og því lýkur í dag. Norðurlandaráð er rúmlega hálfrar aldar gamalt og þing þess eru árlegur viðburður, þar sem á annað hundrað þingmenn og ráðherrar bera saman bækur sínar og ræða málin.

Fastir pennar

Kall leiklistargyðjunnar

Hér er fjallað um listrænan gjörning í Listaháskólanum sem hefur vakið mikla athygli, viðhorf þingkonu Samfylkingarinnar til karlkynsins og hvatirnar sem kunna að liggja að baki umfjöllun Ekstrablaðsins um íslenska auðmenn...

Fastir pennar

Knattspyrnukonur borga með sér

Full ástæða er til að hvetja íslenskar knattspyrnukonur til að skera upp herör gegn misréttinu. Hér eru bæði brotin jafnréttislög og jafnræðisregla stjórnarskrárinnar, eins og Atli Gíslason hæstaréttarlögmaður staðfestir á síðum blaðsins í dag.

Fastir pennar

Frá orðum til aðgerða?

Þessvegna munu þeir leggja allt kapp á að dulbúast í vetur. Þeir munu birtast kjósendum í vor í fagurgrænum treyjum og hlaða kosningastefnuskrár sínar grænum loforðum. Þeir munu lofa að hætta á álfylliríinu og láta renna af sér, þegar þau milljón tonn, sem nú eru í pípunum handa hreppsnefndunum að samþykkja, eru komin í höfn.

Fastir pennar

Nauðsyn þess að endurnýja

Hér er fjallað um hugsanlega endurnýjun á framboðslistum Samfylkingarinnar, eilíft tal sjálfstæðismanna um "andstæðinga" sína og þau tímamót að síðasti Íslendingurinn sem fæddur var á 19. öld er látinn...

Fastir pennar