Innlent
165 166 167 168 169 170 171 172 173 … 334 ›
Búseturétthafar í Grindavík losna undan samningum Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur ákveðið að styrkja búseturétthafa í Grindavík um 95 prósent af framreiknuðu búseturéttargjaldi þeirra. Búseturétthöfum í um þrjátíu íbúðum í bænum stendur nú til boða að losna undan samningi án uppsagnarfrestar. Innlent 15.7.2024 16:28
Þriggja bíla árekstur undir Hamraborg Þriggja bíla árekstur varð á Hafnarfjarðarvegi undir Hamraborg í Kópavogi laust eftir klukkan 15:30 í dag. Innlent 15.7.2024 15:50
Bókanir undir væntingum en ekki hægt að tala um hrun Gistinætur á Íslandi í maí voru um fimmtán prósent færri en á sama mánuði í fyrra. Samdrátturinn í hótelgistingu var 7,1 prósent og var mestur á Austurlandi, eða um 24 prósent. Kristófer Oliversson, framkvæmdastjóri fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu segir að bókunarstaðan sé undir væntingum, en ekki sé hægt að tala um hrun. Innlent 15.7.2024 14:43
Hefur aldrei verið í vinnu en hefur verið iðinn við afbrot Mohamad Kourani, sem var í dag dæmdur í átta ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps og fjölda annarra brota, á enga fjölskyldu hér á landi, hefur aldrei verið í vinnu og hefur þegið opinbert fé til framfærslu. Innan við ári eftir komu til landsins hlaut hann sinn fyrsta refsidóm af þónokkrum. Innlent 15.7.2024 14:14
Veggmynd Guðsteins fer ekki fet Byrjað er að mála yfir veggmynd sem staðið hefur við gömlu verslun Guðsteins Eyjólfssonar í miðbæ Reykjavíkur í áratugi. Mynd af málara við störf hefur strokið íbúum í miðbænum öfugt, sem mótmæltu gjörningnum á Facebook. Verslunareigandi segir að verið sé að sinna viðhaldi, og myndin verði máluð á nýjan leik. Innlent 15.7.2024 13:58
Kæra MAST vegna rekstrarleyfis til Arnarlax Fjöldi einstaklinga og samtaka hefur lagt fram kæru á hendur Matvælastofnun – MAST – vegna útgáfu á rekstrarleyfi til fiskeldis í Óshlíð, Drangsvík og Eyjahlíð sem dagsett er 13. júlí til Arnarlax. Innlent 15.7.2024 13:50
Íslendingur fannst látinn á Spáni 48 ára Íslendingur fannst látinn á föstudag á Spáni. Þetta fæst staðfest af utanríkisráðuneyti en frekari upplýsingar af málinu, og hvers eðlis það er, fást ekki að svo stöddu. Innlent 15.7.2024 13:39
Aðventistar svara sýslumanni fullum hálsi Sýslumaður hefur farið þess á leit við fjársýslu ríkisins að greiðslur til Kirkju sjöunda dags aðventista á sóknargjöldum til félagsins verði felldar niður. Lögmaður KSDA telur engar heimildir fyrir því. Innlent 15.7.2024 13:01
Sniglarnir taka ekki þátt í mótmælum bifhjólafólks í kvöld Formaður Bifhjólasamtaka lýðveldisins, Sniglarnir, segir Vegagerðina vera að taka skref í rétta átt til að tryggja öryggi bifhjólafólks á vegum landsins þó að það mætti gerast hraðar. Hún segir að Sniglarnir muni ekki taka þátt í mótmælum bifhjólafólks í kvöld og að það sé ekki stefna félagsins að krefjast breytinga með reiði. Innlent 15.7.2024 13:00
„Þung skref“ að höfða mál gegn máttarstólpa Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar segir það hafa verið þung skref, að höfða mál gegn Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum, vegna mikils tjóns sem skip stöðvarinnar olli á neysluvatnslögninni milli lands og Eyja síðasta haust. Innlent 15.7.2024 11:47
Kourani, banatilræði við Trump og efnhagsmálin Mohamad Kourani hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps í OK Market í mars og fjölda annarra brota. Kourani var ákærður fyrir að reyna að bana Mustafa Al Hamoodi, eiganda verslunarinnar, með hnífi í mars síðastliðnum, sem og fyrir önnur brot. Nánar verður fjallað um málið í hádegisfréttum. Innlent 15.7.2024 11:43
Ákærður vegna andlátsins í Naustahverfi Karlmaður á sjötugsaldi hefur verið ákærður í tengslum við andlát eiginkonu hans að heimili þeirra að Kjarnagötu á Akureyri í apríl. Ákæran hefur ekki verið birt manninum og því getur Héraðssaksóknari ekki gefið upp fyrir hvað maðurinn er ákærður nákvæmlega. Innlent 15.7.2024 11:23
Kourani dæmdur í átta ára fangelsi Mohamad Kourani hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps í OK Market í mars og fjölda annarra brota. Innlent 15.7.2024 11:03
Lárus skuli fyrst taka til í „eigin veðmálastarfsemi“ Sigurður G. Guðjónsson lögmaður veðmálafyrirtækisins Betsson skýtur föstum skotum á Íþrótta og Ólympíusamband Íslands og Lárus Blöndal formann sambandsins, í aðsendri grein á Vísi í dag. Hann segir Lárus þurfa að taka til í eigin veðmálastarfsemi áður en hann fari að tala fyrir því að banna erendar veðmálasíður. Innlent 15.7.2024 10:39
Tekjur mestar í Vestmannaeyjum og minnstar í Tjörneshreppi Heildartekjur einstaklinga á Íslandi voru rúmar 9,2 milljónir króna að meðaltali árið 2023, eða um 770 þúsund krónur á mánuði. Það er rúm 10 prósent hækkun frá fyrra ári. Sé horft til verðlagsleiðréttingar er raunhækkunin um 1,3 prósent. Meðaltal heildarteknanna var hæst í Vestmannaeyjum, 13,9 milljónir, en lægst í Tjörneshreppi, 6,5 milljónir. Innlent 15.7.2024 10:19
Of lítið fjármagn til viðhalds hafi kostað mannslíf Bifhjólasamtök lýðveldisins, Sniglar, hafa miklar áhyggjur af tíðum bikblæðingum sem hafa verið í klæðningu á vegum landsins undanfarin ár. Haldinn var kynningarfundur á vegum Vegagerðarinnar 10. júlí þar sem meðal annars kom fram að ástæða tíðra blæðinga síðastliðinna ára sé vegna mikillar aukningar þungaflutninga og stærri bíla á vegum með klæðningu. Sniglar taka undir með Vegagerðinni og krefjast úrbóta með auknu fjárframlagi. Innlent 15.7.2024 09:03
Handtekinn grunaður um rán og frelsissviptingu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur rán og frelsissviptingu til rannsóknar en einn var handtekinn í gær í tengslum við málið. Frá þessu er greint í yfirliti lögreglu yfir verkefni gærkvöldsins og næturinnar. Innlent 15.7.2024 06:22
Ungir menn sem veðja stjórnlaust hafi varann á Um sjötíu prósent landsmanna hafa spilað fjárhættuspil síðastliðna tólf mánuði. Ungir karlmenn veðja mun meira á erlendum veðmálasíðum en áður. Sérfræðingur í spilafíkn segir þá sem spila á netinu vera líklegri til að þróa með sér spilafíkn en aðrir. Innlent 14.7.2024 23:00
Stúlkan er fundin Stúlkan sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir fyrr í kvöld er fundin. Innlent 14.7.2024 19:06
Morðtilræði gegn Trump, úrslitaleikur EM og fjárhættuspil Bandaríska leyniþjónustan sætir gagnrýni eftir morðtilræði gegn Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, í gær. Alríkislögreglan gerir ráð fyrir að rannsókn málsins muni taka langan tíma. Innlent 14.7.2024 18:17
„Það er allt búið að vera á floti hérna“ Gífurleg úrkoma hefur verið víða um vestanvert landið síðustu daga. Í Grundarfirði er úrkoman „algerlega fáheyrð“ þar sem úrkoma mældist 227,1 mm frá kl 9 í gær til 9 í dag. Víða hefur flætt yfir tún og vegi. Bóndi í Dölum segir „fína og snyrtilega lindará“ við bæ hennar nú líta út eins og heljarinnar jökulsá. Bæjarstjóri Grundarfjarðarbæjar hefur áhyggjur af ástandi vega og álagi á fráveitukerfinu. Innlent 14.7.2024 17:50
Hjólreiðamaður með opið beinbrot í Þórsmörk Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á þriðja tímanum í dag vegna slasaðrar hjólreiðakonu í Þórsmörk. Konan reyndist með opið ökklabrot. Innlent 14.7.2024 15:19
Utanríkisráðherra segir árásina hörmulega Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra hefur bæst í hóp þeirra stjórnmálamanna sem fordæmt hafa árásina á Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, í gær. Innlent 14.7.2024 15:18
Miklar tafir vegna slyss norðan Hvalfjarðargangna Umferðarslys varð við Geldingaá á Vesturlandsvegi og búast má við umferðartöf. Innlent 14.7.2024 15:06
Tveimur vísað úr Þórsmörk eftir líkamsárás Líkamsárás var framin í Þórsmörk að morgni föstudags. Tveimur mönnum var vísað af svæðinu af lögreglu vegna málsins, en ekki þótti ástæða til að aðhafast frekar. Innlent 14.7.2024 14:32
„Það hefur í raun og veru ekkert sumar komið hjá okkur“ Það var sumar í tvo daga á Snæfellsnesi að sögn björgunarsveitarmanns á svæðinu þar sem gular viðvaranir hafa verið í gildi. Tré rifnuðu upp með rótum á Þingeyri í gær og hjólhýsi fuku í Húnavatnssýslu. Innlent 14.7.2024 13:07
Leysingar hugsanleg orsök E.coli bakteríu E.coli baktería greindist í einu sýni Heilbrigðiseftirlitsins á neysluvatni sem tekið var í íbúðarhúsi á Siglufirði í gær. Í kjölfarið voru fjögur sýni tekin til viðbótar, og er niðurstaðna að vænta úr þeim á morgun. Heilbrigðisfulltrúi segir að erfitt sé að vera með vangaveltur þegar maður hefur ekki heildarmyndina fyrir framan sig. Íbúar eru hvattir til að sjóða vatn fyrir neyslu. Innlent 14.7.2024 12:46
Bustarfellsdagurinn í glæsilegum torfbæ Það er ótrúlegt en dagsatt en sama ættin hefur búið á bænum Bustarfelli í Vopnafirði frá 1532 eða í 492 ár en í dag er einmitt Bustarfellsdagurinn í einum besta varðveitta torfbæ landsins, sem er fullur af munum fortíðar. Innlent 14.7.2024 12:23
Skotárás gegn Trump, baktería í neysluvatni og veðmálastarfsemi Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti varð fyrir skoti í árás á kosningafundi í Pennsylvaníu í gær. Árásin er rannsökuð sem morðtilræði en einn lést í árásinni auk árásarmannsins sem var drepinn á vettvangi. Líklegt þykir að árásin komi til með að styrkja kosningabaráttu Trumps sem sækist eftir embætti forseta á ný í kosningunum í nóvember. Innlent 14.7.2024 11:46
Fræðir áhugasama um mannát „Það virðist vera algengt að það sem vekur hjá okkur óhug er á sama tíma eitthvað svo spennandi,“ segir Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðingur. Í október næstkomandi mun hún leiða námskeið á vegum Endurmenntunar Háskóla Íslands og viðfangsefnið er vægast sagt óvenjulegt: mannát. Innlent 14.7.2024 11:00