Menning

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Lífið virðist leika við þig þessa dagana og ekki er ólíklegt að ástin sé á næstu grösum. Kvöldið verður afar skemmtilegt.

Menning

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Þú ert í fremur erfiðu skapi í dag. Þess vegna ættir þú að forðast að rökræða við fólk. Vináttusamband gengur í gegnum erfitt tímabil.

Menning

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Það er ekki auðvelt að gera þér til hæfis í dag því að þú býst við of miklu. Fólk finnur til vanmáttar gagnvart þér og forðast þig.

Menning

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Félagslífið er blómlegt hjá þér og þú þarft víða að koma við. Ekki er laust við að þér finnist þetta jafnvel einum of mikið af því góða.

Menning

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Þú þarft að sætta þig við að aðrir fá að mestu að ráð um framvindu mála sem þú ert flæktur í. Gáta sem þú hefur velt fyrir þér leysist óvænt.

Menning

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)

Notaðu kraftana til að leysa vandamál sem þú hefur lengi ætlað að leysa. Það verður líklega einhverjum erfiðleikum háð að komast að niðurstöðu.

Menning

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)

Eitthvað sem þú gerir á að þér finnst hefðbundinn hátt leiðir til þess að þú kemst í sambönd sem þig óraði ekki fyrir. Gríptu gæsina á meðan hún gefst og ekki láta heigulsshátt skemma fyrir þér gott tækifæri.

Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Vinnan gengur vel í dag og þú færð hrós fyrir vel unnið starf. Kvöldið verður líflegt og þú átt ef til vill von á gestum.

Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Aðstæður verða dálítið óvenjulegar í dag og þú munt eiga afar annríkt. Það reynir talsvert á þig að koma því nauðsynlegasta í verk.

Menning

Nautið (20.apríl - 20.maí)

Þetta verður rólegur dagur hjá þér. Þú munt nota hann til að hjálpa öðrum. Fréttir sem þér berast staðfesta grun sem þú hefur haft lengi.

Menning

Nautið (20.apríl - 20.maí)

Þeir sem eru ástfangnir eiga góðar stundir og ekki kemur á óvart þó að einhvers staðar verði borin upp bónorð á rómantísku kvöldi.

Menning

Nautið (20.apríl - 20.maí)

Áætlanir þínar ganga upp og það sem þú trúðir að myndi gerast gerist og verður þér til ánægju. Kvöldið verður skemmtilegt.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Fjármálin hafa ekki gengið nógu vel undanfarið en ef rétt er á haldið mun nú verða breyting þar á. Ástarsamband sem þú átt í gengur mjög vel um þessar mundir.

Menning

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Næstu dagar verða nokkuð fjölbreyttir og það verður mikið að gera hjá þér. Kvöldið verður rólegt í faðmi fjölskyldunnar.

Menning

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Eitthvað sem gerist æsir þig upp, miklu meira en ástæða er til. Þú gætir misst stjórn á skapi þínu. Hin sanna ást er á næsta leiti.

Menning

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Það reynist erfitt að ná samkomulagi, sérstaklega á félagslega sviðinu, nema að þú notfærir þér hæfileika þína til hins ýtrasta.

Menning

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Viðkvæmt mál sem tengist fortíðinni kemur upp og þú átt á hættu að leiða hugann stöðugt að því þó að þú ættir að einbeita þér að öðru.

Menning