Menning

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Nú færð þú tækifæri til þess að kynna þér mál sem þú hefur lengi haft áhuga á. Niðurstaða gæti fengist í mál sem tengist fjölskyldunni.

Menning

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Þér berst óvænt tilboð sem kemur róti á huga þinn. Ef rétt er haldið á málum getur þú hagnast verulega í meira en einum skilningi.

Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Vertu þolinmóður þó að þér finnist vinna annarra ganga of hægt. Það væri góð hugmynd að hitta vini í kvöld.

Menning

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)

Einhver hætta virðist á að félagar þínir lendi upp á kant og þú gætir dregist inn í deilur. Gættu þess vel að segja ekkert sem þú gætir séð eftir.

Menning

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Sjálfstraust þitt er ekki í hámarki fyrri hluta dagsins en þú verður sjálfsöruggari og ánægðari eftir því sem líður á daginn.

Menning

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Eitthvað er að vefjast fyrir þér sem ekki sér fyrir endann á á næstunni. Ástfangnir eiga góða daga og kvöldið verður rómantískt.

Menning

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)

Þú verður að hafa stjórn á örlæti þínu og mátt ekki láta aðra komast upp með að nota sér hjálpsemi þína þannig að það skaði þig.

Menning

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Einhver biður þig um að lána sér fjármuni. Það kann að vera allt í lagi ef vel er gengið frá málunum. Fjárhagur þinn fer batnandi.

Menning

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Notaðu hvert tækifæri til þess að komast upp úr hefðbundnu fari. Lífið er til þess að láta sér líða vel en ekki bara strita og strita.

Menning

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Ekki eru allir eins saklausir varðandi ákveðna erfiðleika sem þú átt við að etja og sýnist. Þú skalt vera á varðbergi og ekki treysta hverjum sem er.

Menning

Nautið (20.apríl - 20.maí)

Viðskiptavinir eða aðrir sem tengjast viðskiptum þínum eru trúlega að leyna þig einhverju. Vertu rólegur á morgun mun ástandið verða miklu betra.

Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Þú ert hræddur um að standa þig ekki nógu vel í verkefni sem þú ert að vinna. Ekki hafa þessar áhyggjur og einbeittu þér að því sem þú ert að gera. Þá mun allt ganga vel.

Menning

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)

Þér finnst þér ef til vill ekki miða vel í vinnunni en það kemur í ljós fyrr en varir að þar hafa orðið einhverjar framfarir.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Þér hentar betur að vinna einn í dag en með öðru fólki. Þú ert reyndar alls ekki í skapi til að blanda geði við annað fólk.

Menning

Nautið (20.apríl - 20.maí)

Dagurinn verður heldur viðburðalítill og þú ættir að einbeita þér að vinnunni fyrri hluta dagsins. Hittu vini eða ættingja þína í kvöld.

Menning