Menning

Nautið (20.apríl - 20.maí)

Ef þú ert of fullur sjálfstrausts gæti það leitt til þess að þú takir of mikið að þér og getir ekki sinnt öllu sem skyldi. Hægðu aðeins á þér og reyndu frekar að gera það sem þú gerir vel.

Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Þér finnst þú hafa of mikið að gera og aðrir í fjölskyldunni komast létt frá því sem gera þarf. Gamall vinur hefur samband við þig.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Ekki treysta á aðra til að hjálpa þér að halda loforð þín eða leysa verkefni fyrir þig. Treystu heldur á eigin dómgreind og þá mun allt fara vel.

Menning

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Þú verður að vera á varðbergi gagnvart fólki sem vill hagnast á þér. Það gæti eyðilagt vinnu sem þú ert búinn að leggja á þig.

Menning

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)

Einhver sem þú þekkir vel hefur mjög mikið að gera og veitti ekki af aðstoð frá þér. Þú fengir hjálpsemina launaða ríkulega seinna.

Menning

Nautið (20.apríl - 20.maí)

Næstu dagar eru prófsteinn á tryggð vina þinna við þig. Þér hlotnast óvænt dálítil peningaupphæð og þú skalt ekki hafa samviskubit yfir því að leyfa þér dálítinn munað fyrir peningana.

Menning

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Þú ættir að skipuleggja þig vel og vera viðbúinn því að eitthvað óvænt komi upp á. Ekki láta óvænta atburði koma þér í uppnám.

Menning

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Þú skalt forðast tilfinningasemi og þó eitthvað komi upp á skaltu ekki láta skapið hlaupa með þig í gönur. Reyndu að hafa stjórn á tilfinningum þínum.

Menning

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Hlutirnir eru ekki alveg eins einfaldir og þér sýnast. Þú þarft að hugsa þig vel um áður en þú ákveður næsta skref í fremur vandasömu máli.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Þér finnst þú hafa mikið að gera en verið getur að þínir nánustu hafi það líka. Reyndu að sýna sanngirni í samskipum við aðra.

Menning

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Þú gætir þurft að fresta einhverju vegna breyttrar áætlunar á síðustu stundu. Það verður létt yfir deginum, jafnvel þó að þú lendir í smávægilegum illdeilum.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Þú átt mjög annríkt fyrri hluta dagsins og fólk er ekki jafntilbúið að hjálpa þér og þú vildir. Þegar kvöldar fer allt að ganga betur.

Menning

Nautið (20.apríl - 20.maí)

Hætta er á ágreiningi milli ástvina en hann ætti að vera fremur auðvelt að leysa ef vilji er fyrir hendi. Sýndu þolinmæði við þá sem yngri eru.

Menning

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Þú gætir orðið fyrir vonbrigðum með ákveðna manneskju en það stafar ef til vill af því að þú hefur gert of miklar kröfur til hennar.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Varastu að baktala fólk, það gæti komið þér sjálfum í koll. Ekki er víst að þeir sem þú heldur að séu á þínu bandi í ákveðnu máli séu það.

Menning

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Börnin eru í aðalhlutverki í dag og þú þarft að gefa þeim mikinn tíma. Breytingar eru fyrirsjáanlegar á næstunni og ekki er ólíklegt að þú farir í stutt ferðalag.

Menning

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Tækifærin koma ekki af sjálfu sér og þú þarft að hafa talsvert fyrir hlutunum. Fjölskyldulífið er einstaklega ánægjulegt í dag.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Þú verður líklega nokkuð óþolinmóður fyrri hluta dags og verður að gæta þess að halda ró þinni. Kvöldið notarðu til að slappa af.

Menning

Nautið (20.apríl - 20.maí)

Það er mikið um að vera í félagslífinu hjá þér og það mun veita þér mikla ánægju. Samt sem áður gæti það kostað þónokkur fjárútlát.

Menning

Nautið (20.apríl - 20.maí)

Þér finnst mikið mæða á þér og lítið á aðra að treysta. Þú þarft að gæta þín á að láta fólk ekki komast upp með trassaskap.

Menning