Viðskipti erlent
164 165 166 167 168 169 170 171 172 … 334 ›
Ísland er í 12. sæti í alþjóðlegu netvísitölunni Ísland er í 12. sæti í alþjóðlegu netvísitölunni Web Index 2012 en þetta er í fyrsta sinn sem þessi vísitala er birt. Vísitala þessi nær til rúmlega 60 þjóða víða um heiminn. Viðskipti erlent 6.9.2012 09:10
Lufthansa aflýsir fleiri hundruð flugferðum á morgun Þýska flugfélagið Lufthansa hefur ákveðið að aflýsa fleiri hundruð af flugferðum sínum frá þremur stærstu flugvöllum Þýskalands á morgun, föstudag, vegna verkfalls flugliða hjá félaginu. Viðskipti erlent 6.9.2012 06:52
Ben & Jerry´s höfðar mál gegn klámmyndaframleiðendum Bandaríski ísframleiðandinn Ben & Jerry´s hefur höfðað mál gegn klámmyndaframleiðendum í Bandaríkjunum. Viðskipti erlent 6.9.2012 06:50
Heimsmarkaðsverð á áli fer hækkandi að nýju Heimsmarkaðsverð á áli hefur rétt töluvert úr kútnum frá því í síðasta mánuði. Verðið er komið í rúma 1940 dollara á tonnið í framvirkum samningum til þriggja mánaða á málmmarkaðinum í London. Viðskipti erlent 6.9.2012 06:39
Heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað töluvert Heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað töluvert í vikunni en tunnan af Brent olíunni er komin niður í 113,5 dollara. Á mánudaginn var fór verðið á Brent olíunni í rúma 116 dollara á tunnuna um tíma. Verðið á bandarísku léttolíunni er komið undir 96 dollara á tunnuna. Viðskipti erlent 6.9.2012 06:37
The Economist: Árangur Obama ekki svo slæmur Árangur Barack Obama Bandaríkjaforseta í efnahagsmálum er alls ekki eins slæmur og af er látið að mati tímaritsins The Economist. Viðskipti erlent 6.9.2012 06:35
Nokia kynnir Lumia 920 Finnski raftækjaframleiðandinn Nokia kynnti nýjasta snjallsíma sinn í New York í dag. Fyrirtækið leggur nú allt í sölurnar til að endurheima stað sinn á farsímamarkaðinum. Viðskipti erlent 5.9.2012 14:51
Endurhannaður iPhone væntanlegur Nýr iPhone verður kynntur til leiks í næstu viku. Apple hefur boðað til blaðamannafundar 12. september næstkomandi og þykir það nær öruggt að nýjasta kynslóð snjallsímans verði afhjúpuð. Þó svo að Apple hafi ekki staðfest neitt varðandi hönnun og búnað símans hafa ýmsar upplýsingar um útlit hans og innvols komið fram. Viðskipti erlent 5.9.2012 13:12
Zuckerberg ætlar ekki að losa sig við hlutabréf Mark Zuckerberg, stofnandi og framkvæmdastjóri Facebook, reynir nú að efla trú fjárfesta á samskiptamiðlinum. Hann tilkynnti í dag að hann ætlaði ekki selja hlutabréf sín í fyrirtækinu á næstu misserum. Zuckerberg á nú um 444 milljón hlutabréf í Facebook. Viðskipti erlent 5.9.2012 11:57
Flugfélagið Cathay Pacific hættir að flytja hákarlaugga Flugfélagið Cathay Pacific sem staðsett er í Hong Kong hefur ákveðið að hætta öllum fraktflutningum sínum með þurrkaða hákarlaugga sem og aðrar afurðir af hákörlum. Viðskipti erlent 5.9.2012 10:10
Spenna á mörkuðum vegna nýs síma með þráðlausri hleðslu Spennu gætir nú á mörkuðum vegna atburðar sem forsvarsmenn Nokia og Microsoft hafa skipulagt í sameiningu í New York í dag. Talið er að Nokia muni frumsýna nýjan Windows 8 síma. Viðskipti erlent 5.9.2012 08:47
Skuldir Bandaríkjanna rjúfa 16 trilljón dollara múrinn Erlendar skuldir Bandaríkjanna eru komnar yfir 16 trilljónir dollara eða 16 þúsund milljarða dollara sem samsvarar því að hver Bandaríkjamaður skuldi um 50.000 dollara að rúmlega sex milljónir króna. Viðskipti erlent 5.9.2012 06:47
Gazprom til rannsóknar vegna gruns um stórfelld svik Rússneska orkufyrirtækið Gazprom, sem byggir starfsemi sína öðru fremur á sölu á orku sem unnin er úr jarðgasi, er nú til rannsóknar hjá Evrópusambandinu vegna gruns um að fyrirtækið misnoti markaðsráðandi stöðu sína, einkum í Mið- og Austur-Evrópu. Á vef breska ríkisútvarpsins BBC segir að grunur sé uppi um að fyrirtækið hafi þrýst söluverðinu upp í gróðaskyni, og með því misnotað markaðsráðandi stöðu sína. Viðskipti erlent 4.9.2012 22:35
Lækkanir víðast hvar á alþjóðlegum mörkuðum Lækkanir hafa einkennt helstu hlutabréfamarkaði í Evrópu í dag. Þannig lækkaði DAX vísitalan þýska um 1,17 prósent og FTSE 100 vísitalan breska um 1,5 prósent. Lækkanir eru raktar til svartsýni hjá fjárfestum vegna nýrra atvinnuleysistalna evrópsku hagstofunnar Eurostat, en samkvæmt þeim er atvinnuleysi enn að aukast í Evrópu, en það mælist nú ríflega 11 prósent. Viðskipti erlent 4.9.2012 17:41
iPhone 5 lendir í næstu viku Tæknirisinn Apple hefur boðað til blaðamannafundar í næstu viku. Sem fyrr gefur fyrirtækið ekki upp hvert fundarefnið sé. Það þykir þó vera nær öruggt að nýr iPhone snjallsími verði afhjúpaður á fundinum. Viðskipti erlent 4.9.2012 17:16
Aukið eftirlit með BitTorrent Líkur eru á að þeir sem nota skráarskiptaþjónustu BitTorrent til að nálgast tónlist, kvikmyndir og hugbúnað án þess að greiða fyrir efnið, séu undir eftirliti stofnana sem fylgjast með brotum á lögum um hugverkavernd. Viðskipti erlent 4.9.2012 14:37
Snjallsími sem hægt er að hlaða þráðlaust Raftækjaframleiðandinn Nokia mun opinbera nýjustu vörulínu sína í New York á morgun. Talið er að fyrirtækið muni svipta hulunni af nýjum snjallsíma sem hægt er að hlaða þráðlaust. Viðskipti erlent 4.9.2012 13:23
Persónuupplýsingum viðskiptavina Apple lekið Hópur tölvuþrjóta, sem gengur undir nafninu AntiSec, hefur birt persónuupplýsingar rúmlega milljón viðskiptavina Apple. Viðskipti erlent 4.9.2012 13:08
Nettengd fjarskiptatæki sjö milljarðar árið 2015 Gert er ráð fyrir að um 7.1 milljarður fjarskiptatækja sem tengst geta veraldarvefnum verði í umferð árið 2015. Þetta kemur fram í skýrslu Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins kynnti á dögunum. Viðskipti erlent 4.9.2012 11:16
Lufthansa aflýsir 190 flugferðum vegna verkfalls Þýska flugfélagið Lufthansa hefur aflýst 190 af flugferðum sínum í morgun vegna yfirstandandi verkfalls flugliða hjá félaginu. Nær allar þessar flugferðir voru áætlaðar frá alþjóðaflugvellinum í Frankfurt. Viðskipti erlent 4.9.2012 09:41
Heimsmarkaðsverð á olíu hækkar nokkuð Nokkur hækkun hefur orðið á heimsmarkaðsverði á olíu undanfarin sólarhing eða um og yfir 1%. Viðskipti erlent 4.9.2012 07:37
Andalúsía biður um fjárhagsaðstoð frá Madrid Andalúsía á Spáni hefur nú bæst í hóp þeirra héraða landsins sem farið hafa fram á fjárhagsaðstoð frá stjórnvöldum í Madrid. Viðskipti erlent 4.9.2012 06:57
Moody´s setur lánshæfiseinkunn ESB á neikvæðar horfur Matsfyrirtækið Moody´s hefur sett topplánshæfiseinkunn Evrópusambandsins á athugunarlista sinn með neikvæðum horfum. Viðskipti erlent 4.9.2012 06:47
Norðmenn ætla ekki að bora í Norðurpólinn Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, hefur sett ofan í við einn af ráðherrum sínum, sjálfan olíu- og orkumálaráðherrann Ola Borten Moe, vegna yfirlýsingar hans um að Noregur gæti leitað að olíu og gasi alla leið á Norðurskautið. Norðmenn leyfa nú þegar boranir í Barentshafi, langt norðan heimskautsbaugs, og var olíumálaráðherrann, sem situr fyrir Miðflokkinn í þriggja flokka rauðgrænni ríkisstjórn Noregs, spurður í Stafangri í síðustu viku, í tengslum við ráðstefnu olíuiðnaðarins, hve langt norður á bóginn ætti að sækja. Olíumálaráðherrann svaraði að engin ástæða væri til að hætta núna enda næði lögsaga Noregs nánast alla leið á Norðurpólinn. Viðskipti erlent 4.9.2012 05:00
Draghi ýjar að fjárinnspýtingu Mario Draghi, bankastjóri Seðlabanka Evrópu, ýjaði að því á lokuðum fundi í Evrópuþinginu í dag að bankinn gæti þurft að koma þjóðríkjum í vanda til hjálpar með frekari kaupum á ríkisskuldabréfum. Frá þessu greindi Wall Street Journal á vef sínum í kvöld. Draghi var til svara á fundi í Evrópuþinginu, en mánaðarlegur peningastefnufundur Seðlabanka Evrópu fer fram á fimmtudaginn. Viðskipti erlent 3.9.2012 21:16
Þjóðverjar vilja Grikki úr evrusamstarfinu Aðeins fjórðungur Þjóðverja telur að Grikkir eiga að vera áfram í evrusamstarfinu og þiggja frekari fjárhagsaðstoð frá hinum evruríkjunum, samkvæmt nýrri skoðanankönnun sem Financial Times gerði í Þýskalandi. Viðskipti erlent 3.9.2012 18:02
Apple vill banna Galaxy S3 í Bandaríkjunum Apple krefst þess nú að lögbann verði sett á sölu Galaxy S3 snjallsímans í Bandaríkjunum. Síminn er flaggskip suður-kóreska raftækjaframleiðandans Samsung en fyrirtækið er helsti samkeppnisaðili Apple. Viðskipti erlent 3.9.2012 12:32
Aðdáendur endurgera Half-Life Bandaríski tölvuleikjaframleiðandinn Valve tilkynnti um helgina að uppfærð útgáfa af tölvuleiknum Half-Life væri væntanlega í þessum mánuði. Síðustu átta ár hafa aðdáendur Half-Life unnið að uppfærslunni en Valve gaf út sérstök forrit sem einstaklingar gátu notað til að endurforrita leikinn. Viðskipti erlent 3.9.2012 12:05
Iceland Foods ræður nýjan viðskiptastjóra Breska verslunarkeðjan Iceland Foods hefur ráðið fyrrverandi sölustjóra Aldi, Paul Foley, sem alþjóðlegan viðskiptastjóra fyrirtækisins. Foley mun sjá um útflutningsþjónustu Iceland Foods, ITEX, ásamt því að hafa umsjá með verslunum fyrirtækisins í Tékklandi. Viðskipti erlent 3.9.2012 11:40
Atvinnuleysi eykst enn á evrusvæðinu Atvinnuástandið á evrusvæðinu heldur áfram að versna og enn eitt metið í fjölda atvinnulausra var slegið á svæðinu í júlímánuði. Viðskipti erlent 3.9.2012 09:37