Viðskipti erlent

Dýrasta teppi sögunnar selt á 1,2 milljarða

Sjaldgæft persneskt teppi frá 16. öld var selt á uppboði hjá Christie´s í London í gærdag fyrir rúmlega 6 milljónir punda eða um 1,2 milljarða kr. Teppið er þar með það dýrsta í sögunni en það var slegið að lokið á tuttuguföldu matsverði þess.

Viðskipti erlent

Askan úr Eyjafjallajökli fyllti hótel í Kaupmannahöfn

Nær öll hótel í Kaupmannahöfn voru yfirfull af gestum í nótt vegna öskunnar úr Eyjafjallajökli. Gestirnir voru flugfarþegar sem eru strandaglópar í borginni þar sem allt flug til og frá Danmörku leggur niðri. Svipuð staða hefur eflaust verið upp á teningnum í fleiri stórborgum um norðanverða Evrópu.

Viðskipti erlent

Öskufallið hækkar heimsmarkaðsverð á olíu

Búið er að loka fyrir alla þyrluflugsumferð á olíuvinnslusvæðunum í Norðursjó og meðfram ströndum Noregs vegna öskufallsins frá gosinu í Eyjafjallajökli. Norska olíuöryggisráðið er nú að meta stöðuna en fyrir liggur að ef draga verður úr olíuframleiðslu á svæðinu muni slíkt hækka heimsmarkaðsverð á olíu.

Viðskipti erlent

Össur: Sigurjón er „hvapholda í andliti“

Konráð Jónsson, lögfræðingur, framkvæmdi tilraun til að staðreyna hvort hægt væri að gleypa hálfan snúð í einum bita eins og Sigurjón Þ. Árnason á að hafa gert samkvæmt vitnisburði Össurar Skarphéðinssonar. Konráð komst að því að þetta væri ómögulegt og ritaði Össuri bréf í kjölfarið. Össur svaraði Konráð, gerir athugasemdir við aðferðafræði hans og segist standa við orð sín sem vitnað er til í skýrslunni.

Viðskipti erlent

Töluvert dregur úr tapi Alcoa

Bandaríski álrisinn Alcoa, sem er móðurfélag Fjarðaráls, skilaði þokkalegu uppgjöri fyrir fyrsta ársfjórðung ársins en töluvert dró úr tapi félagsins frá sama tímabili í fyrra. Tapið í ár nemur 201 milljónum dollara en var 497 milljónir dollara í fyrra.

Viðskipti erlent

Þrjátíu milljarða evra neyðarlán

Evrópusambandið (ESB) hefur boðist til að lána Grikklandi allt að 30 milljarða evra með um fimm prósenta vöxtum á þessu ári til að létta á gríðarlegum fjárhagsvanda landsins. Gengi evrunnar hefur styrkst töluvert í morgun í kjölfar þessarar ákvörðunnar.

Viðskipti erlent

Styrkir Grikkland og Evrópu

George Papandreou, forsætisráðherra Grikklands, segir að vegna samkomulags evruríkjanna vegna efnahagserfiðleika Grikklands komi landið sem og Evrópa til með að styrkjast. Grísk stjórnvöld glíma við gífurlegan skuldavanda og kynntu í febrúar umfangsmiklar aðhaldsaðgerðir sem var mótmælt á götum úti.

Viðskipti erlent

Lánshæfiseinkunn Grikklands lækkuð

Matsfyrirtækið Fitch Ratings lækkaði í gær lánshæfieinkunn ríkissjóðs Grikklands. Grísk stjórnvöl glíma við gífurlegan skuldavanda og kynntu í febrúar umfangsmiklar aðhaldsaðgerðir sem var mótmælt á götum úti. Einkunnin lækkar úr BBB+ í BBB- en að mati fyrirtækisins eru horfur neikvæðar.

Viðskipti erlent

BIS: Þjóðarskuldir eru komnar á suðupunktinn

Forráðmenn Alþjóða greiðslumiðlunarbankans (BIS) í Basel eru ekki að skafa af hlutunum. Þeir segja að þjóðarskuldir séu nú að skríða yfir hættumörkin hjá Bandaríkjunum, Japan, Bretlandi og flestum þjóðum í Vestur Evrópu. Afleiðingin gæti orðið skuldabréfakreppa í miðju alþjóðlega hagkerfinu.

Viðskipti erlent

Tony og Ridley Scott vilja annast rekstur MGM

Bræðurnir Tony og Sir Ridley Scott hafa óvænt blandað sér í slaginn um kvikmyndaverið MGM sem er til sölu þessa dagana. Þeir bræður hafa lagt fyrir kröfuhafa MGM áætlun um endurskipulagningu kvikmyndaversins og hugmyndir sínar um rekstur þess.

Viðskipti erlent

Sala á nýjum bílum eykst í Bretlandi

Sala á nýjum bifreiðum í Bretlandi jókst um fjórðung í síðasta mánuði. Þetta þykir benda til þess að jafnvægi sé að komast á í hagkerfinu þar. Skráningar á nýjum bílum jukust um 26,6% og voru 397,383 bifreiðar skráðar.

Viðskipti erlent

Dýrasti skilnaður sögunnar í uppsiglingu

Dýrasti skilnaður sögunnar er nú í uppsiglingu í Bandaríkjunum. Hjónin sem hér um ræðir eru ekki bara að slást um þennan hefðbundna fjölda af húsum, snekkjum, einkaþotum og nær daglegan aðgang að hárgreiðslumeistara sínum. Örlög ástsælasta íþróttaliðs Bandaríkjanna ráðast einnig í þessum skilnaði.

Viðskipti erlent

Trichet heldur stýrivöxtum ECB í 1%

Eins og búist var við ákvað Jean-Claude Trichet seðlabankastjóri Evrópska seðlabankans (ECB) að halda stýrivöxtunum á evrusvæðinu í 1%. Með þessu vonast Trichet til þess að pústa lífi í hagkerfi svæðisins.

Viðskipti erlent

OECD: Efnahagsbatinn gengur mishratt fyrir sig

Efnahags- og framfarastofnunin OECD segir að flest bendi nú til þess að alheimshagkerfið haldi áfram á batavegi en batinn gengur þó mishratt og vel fyrir sig eftir einstökum heimshlutum og ríkjum. Enn er samt of snemmt að fagna fullum bata. Þetta kom fram í ástandsyfirliti sem stofnunin sendi frá sér í gær.

Viðskipti erlent

Gjaldþrota auðmannabanki átti aðeins 40 viðskiptavini

Hinn gjaldþrota danski auðmannabanki (rigmandsbank) Capinordic Bank átti aðeins 35 til 40 viðskiptavini í Danmörku. Nær allir þessir viðskiptavinir tilheyrðu svokölluðum milljarðamæringaklúbb landsins en meðal þeirra voru Erik Damgaard, Aldo Petersen, Peter Forchammer og Ole Vagner.

Viðskipti erlent

BA og Iberia sameinast sem International Airways

Flugfélögin British Airways (BA) og Iberia á Spáni munu sameinast fyrir árslok undir nafninu International Airways. Samningurinn um sameininguna var undrritaður í vikunni eftir töluverðar tafir sem stöfuðu af „tæknilegum orsökum" eins og það er orðað í breskum fjölmiðlum í morgun.

Viðskipti erlent

Skuldatryggingaálag Grikklands hærra en Íslands

Kostnaðurinn við það að tryggja skuldir ríkissjóðs Grikklands varð hærri í dag en kostnaðurinn við það að tryggja skuldir ríkissjóðs Íslands. Þetta er í fyrsta sinn sem það gerist síðan 2005. Reuters segir ástæðuna vera þá að efasemdir séu um að Grikkir vilji og geti fjármagnað skuldir sínar.

Viðskipti erlent

Greenspan svarar fyrir sig

Alan Greenspan, fyrrum aðalbankastjóri seðlabankans í Bandaríkjunum, mun í dag bera vitni fyrir nefnd sem rannsakar aðdraganda efnahagshrunsins í Bandaríkjunum. Búist er við því að hann viðurkenni að bankinn hafi lítið gert til þess að reyna að koma í veg fyrir ofvöxt fjármálastofnana í landinu en vöxtur þeirra er talinn hafa átt sinn þátt í því hvernig fór.

Viðskipti erlent