Viðskipti innlent
127 128 129 130 131 132 133 134 135 … 334 ›
Cintamani tekur yfir rekstur hjólabúðarinnar GÁP Cintamani hefur keypt húsnæði og rekstur hjólabúðarinnar GÁP í Faxafeni 7 í Reykjavík. Í kjölfar kaupanna var gerður samstarfssamningur um rekstur vefverslunarinnar Adidas.is sem rekin hefur verið í Faxafeni af Sportmönnum, umboðsaðila Adidas á Íslandi, undanfarinn áratug. Viðskipti innlent 14.3.2022 17:18
Framúrskarandi vefir 2021 verðlaunaðir Íslensku vefverðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn í gærkvöldikvöld og voru framúrskarandi vefir ársins 2021 verðlaunaðir. Viðskipti innlent 12.3.2022 14:04
Bein útsending: Íslensku vefverðlaunin fyrir 2021 Sextíu og fimm verkefni eru tilnefnd til Íslensku vefverðlaunanna fyrir árið 2021 sem verða afhent í beinni útsendingu í kvöld. Viðskipti innlent 11.3.2022 18:00
Seðlabankinn sýknaður en Þorsteinn Már fær skaðabætur Seðlabanki Íslands var sýknaður í Landsrétti í dag af skaðabótakröfu sjávarútvegsfyrirtækisins Samherja en hluta málsins var vísað frá dómi. Seðlabankinn var hins vegar dæmdur til að greiða Þorsteini Má Baldvinssyni, forstjóra Samherja, 2,7 milljónir króna í skaðabætur. Viðskipti innlent 11.3.2022 14:30
Hafa samið um kaup á Eldum rétt Hagar hf. og eigendur Eldum rétt ehf. hafa náð samkomulagi um kaup Haga á öllu hlutafé Eldum rétt. Viðskipti innlent 11.3.2022 14:28
Ófriður í álfunni gæti sett ferðasumarið í uppnám Stríðshörmungar eru það síðasta sem Evrópa þurfti eftir tvö ár af heimsfaraldri. Þetta á ekki síst við um ferðaþjónustuna sem fékk hvert höggið á fætur öðru síðastliðin ár þegar ýmist var hert eða slakað á sóttvarnaaðgerðum sem orkaði á ferðaþjónustuna eins og fjárhagslegur harmónikkuleikur þótt höggin væru milduð með fjárhagslegum úrræðum stjórnvalda. Viðskipti innlent 11.3.2022 12:20
Norðlenskir verktakar kepptu hart um þjóðveg við Hrafnagil Fjórir norðlenskir verktakar kepptu hart um að fá að leggja nýjan þjóðveg meðfram Hrafnagilshverfi í Eyjafjarðarsveit. Þegar tilboðin voru opnuð hjá Vegagerðinni í vikunni reyndust þau öll vera undir kostnaðaráætlun, eitt þó sýnu lægst. Viðskipti innlent 10.3.2022 23:35
Bein útsending: Iðnþing 2022 „Græn iðnbylting á Íslandi“ er yfirskrift Iðnþings Samtaka iðnaðarins sem haldið verður í Silfurbergi í Hörpu milli klukkan 14 og 16 í dag. Hægt verður að fylgjast með þinginu í beinu streymi á Vísi, en í hópi ræðumanna má finna þrjá ráðherra. Viðskipti innlent 10.3.2022 13:30
Árni hlaut 98 prósent atkvæða Árni Sigurjónsson, yfirlögfræðingur Marels, var endurkjörinn formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins á aðalfundi í dag. Hann var einn í framboði og hlaut 98 prósent atkvæða. Viðskipti innlent 10.3.2022 13:29
Ljóst að skerðingar standa lengur yfir eftir eitt erfiðasta vatnsár sögunnar Landsvirkjun segir stöðuna í vatnsbúskap nú vera með þyngsta móti eftir eitt erfiðasta vatnsár í sögu Landsvirkjunar, meðal annars vegna veðurs í vetur. Ljóst að skerðingar muni standa út aprílmánuð en Landsvirkjun hefur leitað eftir endurkaupum á raforku hjá stórnotendum. Viðskipti innlent 10.3.2022 11:12
Kappkosta við þjálfun starfsfólks til að geta sinnt verkefnum kollega sinna á flótta í Úkraínu Starfsmenn tölvuöryggisfyrirtækisins Cyren í Hafnarfirði vinna nú hörðum höndum að því að þjálfa starfsmenn sína þannig að þeir geti tekið að sér verkefni sem hafa verið á könnu kollega sinna á starfstöð fyrirtækisins í Kænugarði í Úkraínu. Starfsmenn fyrirtækisins í Úkraínu hafa margir neyðst til að flýja höfuðborgina á síðustu dögum og hefur því þurft að bregðast við með undirbúa flutning verkefna annað til að hægt sé að tryggja áfram tölvu- og netvarnir viðskiptavina alls staðar um heim. Viðskipti innlent 10.3.2022 07:31
Fimmtán flugfélög með reglulegt flug til Íslands í ár og 25 í sumar Fimmtán flugfélög hyggjast fljúga hingað til lands reglulega í ár og alls munu 25 bjóða upp á flug til Íslands í sumar. Árið 2019, fyrir heimsfaraldur, voru það fjórtán flugfélög sem flugu allan ársins hring til Íslands, en líkt og í ár voru það 25 flugfélög sem flugu til Íslands sumarið 2019. Viðskipti innlent 10.3.2022 07:15
Búist við innfluttri og innlendri verðbólgu: Skorað á ríkið að minnka álögur Félag íslenskra bifreiðaeigenda hvetur stjórnvöld til að fara að fordæmi Íra og lækka álögur á eldsneyti vegna gríðarlegra hækkana síðustu daga. Slíkar lækkanir hafa ekki verið sérstaklega ræddar í fjármálaráðuneytinu. Bent er á að Íslendingar séu lánsamir að þurfa ekki að kynda með eldsneyti. Viðskipti innlent 9.3.2022 21:00
Mikilvægt að virkja til þess að ná fullum orkuskiptum Forsætisráðherra telur mikilvægt að virkja til þess að ná fullum orkuskiptum ásamt því að forgangsraða þeirri orku sem við framleiðum í orkuskipti innanlands. Aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar segir næstu skref í höndum stjórnmálamanna. Viðskipti innlent 9.3.2022 20:01
Telur ummæli um virkjanaþörf óábyrg Þingmaður Pírata segir ummæli formanns starfshóps sem vann skýrslu um orkumál óábyrg en hann sagði að ef við ætlum að tvöfalda raforkuframleiðslu Íslands þurfi að reisa eina 100 megawatta virkjun á ári fram til ársins 2040. Þingmaðurinn segir vel hægt að ná markmiðum um orkuskipti án virkjana. Viðskipti innlent 9.3.2022 12:43
Auka aftur réttindi sjóðfélaga og heimila lífeyristöku frá 60 ára aldri Lífeyrissjóður verzlunarmanna hefur aukið réttindi sjóðfélaga vegna sterkrar stöðu sjóðsins í annað sinn á innan við hálfu ári. Réttindi verða aukin til viðbótar þeirri 10% hækkun sem varð í nóvember 2021 og hækka lífeyrisgreiðslur um liðlega 7%. Viðskipti innlent 9.3.2022 10:12
Sex milljóna króna hækkun á innan við viku Ásett verð þriggja herbergja blokkaríbúðar í Kópavogi hækkaði um sex milljónir króna á fimm daga tímabili. Fasteignasali segir að aðstæður hafi breyst hjá seljenda sem vilji reyna fá hærra verð fyrir eignina. Viðskipti innlent 9.3.2022 07:00
„Þetta kallar á allavegana eina 100 megawatta virkjun á hverju ári“ Þörf er á aukinni orkuframleiðslu til að anna orkuskiptum á komandi áratugum. Formaður starfshóps sem vann skýrslu um orkumál segir að tvöföldun á raforkuframleiðslu Íslands kalli á eina 100 megawatta virkjun á ári fram til ársins 2040. Viðskipti innlent 8.3.2022 22:32
Laun forstjóra OR hækkuðu um sjö milljónir króna á síðasta ári Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, er nú með 3,339 milljónir á mánuði í laun. Viðskipti innlent 8.3.2022 15:36
Tólf milljarða hagnaður af rekstri OR á síðasta ári Tólf milljarða króna hagnaður varð af rekstri Orkuveiru Reykjavíkur á síðasta ári. Ársreikningur samstæðunnar var samþykktur af stjórn í dag og er lagt til við aðalfund að greiddur verði arður til eigenda – það er Reykjavíkurborg, Akraneskaupstaður og Borgarbyggð – sem nemi fjórum milljörðum króna. Viðskipti innlent 8.3.2022 14:55
Rússneskum karfaveiðiskipum meinað að koma til landsins Rússneskum karfaveiðiskipum verður ekki lengur heimilt að koma til Íslands eftir að íslensk stjórnvöld tóku ákvörðun um að afturkalla undanþágu sem verið hefur í gildi frá aldamótum. Viðskipti innlent 8.3.2022 13:17
Heimsmarkaðsverð á áli orðið ævintýralega hátt Heimsmarkaðsverð á áli fór í gær í 3.850 dollara tonnið. Þetta er langhæsta álverð sögunnar. Álmarkaðir hafa heldur róast framan af degi og verðið sigið niður, fór niður í 3.740 dollara í morgun og var komið niður undir 3.500 dollara um hádegisbil. Viðskipti innlent 8.3.2022 12:24
Tugmilljóna mál þrotabús Pressunnar gegn ríkinu fyrir Hæstarétt Hæstiréttur hefur veitt þrotabúi Pressunnar ehf. leyfi til að áfrýja dómi Landsréttar þar sem íslenska ríkið var sýknað af tugmilljóna kröfu þrotabúsins. Viðskipti innlent 8.3.2022 12:17
Ráðin til sjóbaða Skúla í Hvammsvík Hilmar Þór Bergmann, Fríða Jónsdóttir, Gróa Jónsdóttir og Guðmundur Guðjónsson hafa öll verið ráðin til starfa til að vinna að uppbyggingu ferðaþjónustu í Hvammsvík í Hvalfirði. Viðskipti innlent 8.3.2022 09:11
Segir Bolungarvíkurgöng hafa bjargað Bjarnabúð Margir spáðu því að Bjarnabúð í Bolungarvík, ein elsta verslun landsins, myndi lognast út af með Bolungarvíkurgöngum þegar auðveldara varð fyrir Bolvíkinga að skreppa í búðir á Ísafirði. Reynsla kaupmannsins varð þveröfug; Ísfirðingar fóru að versla í Bolungarvík. Viðskipti innlent 7.3.2022 21:41
Olíuverð komið langt yfir afkomuspá Verð á þotueldsneyti er komið yfir það sem forsvarsmenn Icelandair gerðu ráð fyrir í afkomuspá. Þá verður félagið varnarlaust gagnvart sveiflum á eldsneytisverði þann 1. júlí. Viðskipti innlent 7.3.2022 20:59
„Mér þykir Íslendingar full fljótir að fara í kjarnorkubyrgin“ Rauður dagur var í kauphöllinni í dag. Hagfræðingur segir sérstakt að hækkandi olíuverð hafi meiri áhrif hér á landi en í löndum sem eru háð olíu Rússa og telur Íslendinga full fljóta í kjarnorkubyrgin. Viðskipti innlent 7.3.2022 20:00
Breytingar gerðar á framkvæmdastjórn Marel Breytingar hafa verið gerðar á framkvæmdastjórn Marel, sem taka gildi frá og með deginum í dag. Fram kemur í tilkynningu frá Marel að markmið breytinganna sé að skerpa á skilvirkni í rekstri, stjórnun lykilfjárfestinga til að auka hraða og sveigjanleika og styðja við vaxtarmarkmið. Viðskipti innlent 7.3.2022 17:43
Lóa Björk um borð í Lestina Lóa Björk Björnsdóttir hefur verið ráðin í dagskrárgerð og menningarumfjöllun á Rás 1. Hún mun stýra Lestinni með Krisjáni Guðjónssyni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá RÚV. Viðskipti innlent 7.3.2022 16:40
Sætanýting hjá Play jókst milli mánaða Flugfélagið Play flutti 19.686 farþega nýliðnum febrúarmánuði og var sætanýting 67,1 prósent, samanborið við 55,7 prósent í janúar. Viðskipti innlent 7.3.2022 13:53