

Opinber þjónusta
Borgarstjórn samþykkti á síðasta fundi sínum fyrir sumarfrí gagngerar endurbætur á þjónustu Reykjavíkurborgar. Undirbúningur málsins hefur staðið í hálft annað ár og byggist stefnumörkunin á niðurstöðum alþjóðlegra kannana, innlendum og erlendum rannsóknum auk ítarlegrar umræðu og samráðs starfsfólks, nefnda og ráða Reykjavíkurborgar.
Endurskipulagning þjónustunnar tengist einu stærsta verkefni sem öll stjórnvöld standa frammi fyrir: að bæta þjónustu við íbúa og atvinnulíf án þess að auka kostnað. Sinna vaxandi kröfum um málshraða, stuðning og þjónustu án þess að hækka skatta. Lykillinn að því er að nýta kosti nýrrar tækni við upplýsingamiðlun og málsmeðferð, læra af umbótaverkefnum í opinberri þjónustu, hvar sem fyrirmyndarverkefni er að finna, og síðast en ekki síst að forðast kreddur og hjólför gamla tímans.
Umbæturnar í borginni sem sýnilegar verða íbúum á næsta ári byggja á þremur stoðum: stofnun þjónustumiðstöðva í hverfum, símavers með öflugri upplýsinga- og leiðbeiningaþjónustu og rafvæðingu umsóknarferla á vefnum. Í þjónustukönnun sem unnin var fyrir Reykjavíkurborg síðast liðið haust kemur fram að níu af hverjum tíu Reykvíkingum styðja hvert þessara þriggja stefnumiða.
Með stofnun fimm þjónustumiðstöðva á að opna Reykvíkingum aðgang að þjónustu borgarinnar eins nærri þeirra heimavelli og kostur er. Ekki á lengur að þurfa að rekast á milli staða og stofnana heldur á að vera hægt að nálgast allt á einum stað. Og helst í einni heimsókn. Á þjónustumiðstöð ættu íbúar þannig að geta leitað með öll erindi, fengið upplýsingar og leiðbeiningar auk þess að sækja þjónustu og ráðgjöf sem lítur að daglegu lífi.
Með þessari endurskipulagningu vilja borgaryfirvöld einnig verða betri samstarfsaðili lögreglu og ýmissa þjónustustofnana ríkisins sem ættu raunar einnig að geta veitt þjónustu sína í gegnum hverfamiðstöðvar borgarinnar. Reynslan af tilraunaverkefnum í þeim efnum, einsog Miðgarður í Grafarvogi er dæmi um, hafa ótvírætt sannað gildi sitt. Hvergi er viðbragðstími styttri. Hvergi finnst íbúum þeir öruggari.
Síðast en ekki síst getur endurskipulagning þjónustu í hverfum eflt samstarf við fjölskyldur og frjáls félagasamtök. Þetta er gríðarlega mikilvægt því sá félagsauður sem í samtökum íbúa felst hefur sýnt sig að hafa meiri áhrif á árangur velferðarþjónustu en flest annað. Skipulag þjónustunnar verður því að styðja við hverfin. Í því er framtíðin falin. Nýja Reykjavík á að tryggja greiðan aðgang að upplýsingum og íbúalýðræði, netlausnum og nærþjónstu.
Skoðun

Vilja Ísland í sambandsríki
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Blikkandi viðvörunarljós
Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar

„Evrópa er í hnignun“ – Er það samt? Lítum aðeins á söguna
Guðni Freyr Öfjörð skrifar

Vindmyllufyrirtæki í áskrift hjá íslenskum almenningi
Linda Jónsdóttir skrifar

Metnaðarfull markmið og stórir sigrar
Halla Helgadóttir skrifar

Hvers virði er vara ef hún er ekki seld?
Jón Jósafat Björnsson skrifar

Aulatal um að Evrópa sé veik og getulaus
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Ár vondra vinnubragða í Stúdentaráði HÍ
Katla Ólafsdóttir,Mathias Bragi Ölvisson skrifar

Mannúð og hugrekki - gegn stríðsglæpum og þjóðarmorði
Ólafur Ingólfsson skrifar

Framtíð menntunar – byggjum á trausti, ekki tortryggni
Helga Kristín Kolbeins skrifar

Fé án hirðis
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar

Gæludýr geta dimmu í dagsljós breytt
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Myllan sem mala átti gull
Andrés Kristjánsson skrifar

Sjö mýtur um loftslagsbreytingar
Kristinn Már Hilmarsson,Elva Rakel Jónsdóttir skrifar

Pírati pissar í skóinn sinn
Helgi Áss Grétarsson skrifar

Ógnin sem við sjáum ekki – Hið falda tungumál ungu kynslóðarinnar á netinu
Birgitta Þorsteinsdóttir skrifar

Fáum presta aftur inn í skólana
Rósa Guðbjartsdóttir skrifar

Rösk og reiðubúin fyrir landsbyggðina
Hópur Röskvuliða skrifar

Icelandic Learning is a Gendered Health Issue
Logan Lee Sigurðsson skrifar

Goðsögnin um UFS-sjóði sem róttækar „woke"- fjárfestingar
Már Wolfgang Mixa skrifar

Framtíð Öskjuhlíðar
Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar

Vanhæfur Sjálfstæðisflokkur
Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar

Mælt fyrir miklum kjarabótum öryrkja og aldraðra
Inga Sæland skrifar

Mannréttindabrot og stríðsglæpir Rússa í Úkraínu
Erlingur Erlingsson skrifar

Áskorun til Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Háskóla Íslands
Ríkharður Ólafsson,Styrmir Hallsson skrifar

Ákvarðanir teknar í Reykjavík – afleiðingarnar skella á okkur
Hópur Framsóknarmanna í sveitarstjórnum skrifar

Snjallborgin eða Skuggaborgin Reykjavík: Gervigreindarknúið höfuðborgarsvæði
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Getur Sturlunga snúið aftur?
Leifur B. Dagfinnsson skrifar

Vaka stendur með Menntavísindasviði í verki
Gunnar Ásgrímsson skrifar

Vorbókaleysingar
Henry Alexander Henrysson skrifar