Viðskipti innlent

Gengi krónunnar styrkist

Gengi krónunnar styrktist um 2,73 prósent í miklum viðskiptum í gær og var gengisvísitalan 114,3 í lok dags. Greiningardeildir banka telja margar hverjar að í styrkingunni megi greina áhrif hækkunar stýrivaxta Seðlabankans á fimmtudag, en hún var umfram væntingar á markaði. Á vef Íslandsbanka segir að viðbrögðin á gjaldeyrismarkaði í gær megi einnig skýra út frá því að Seðlabankinn hafi tilkynnt í vikunni að í árslok myndi hann hætta reglulegum gjaldeyriskaupum sínum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×