Tíska og hönnun

Litir og léttleiki

Tískuvikan í London hófst með pompi og prakt sunnudaginn 19. september með glæsilegum ofurfyrirsætum og 45 hönnuðum víðs vegar að sem sýndu heiminum komandi tísku fyrir næsta vor og sumar. Við getum strax farið að hlakka til þar sem tískan sýndi léttleika og gleði sem aldrei fyrr og verður vorið og sumarið því með þeim bestu hingað til.

Þó að léttleiki einkenni tískuna þá nálgast hönnuðirnir hann á mismunandi hátt þannig að tískan verður einnig með eindæmum fjölbreytt og öðruvísi. Litir, dulúð, rómantík, einfaldleiki og hugmyndaflugið fengu aldeilis að njóta sín og léku falleg snið og skemmtilegar litasamsetningar við augu áhorfenda.

Tískuvikunni lýkur í dag og hljóta allir að vera sammála um að hún hafi verið einstaklega vel heppnuð. Nú tekur bara við óþolandi bið eftir vorinu og sumrinu þegar veskið tæmist og fataskápurinn stækkar og stækkar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.