Tíska og hönnun

Krotaði á átta milljón krónu tösku móður sinnar

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Tónlistarkonan Cardi B á rándýrt töskusafn sem dóttir hennar komst í á dögunum.
Tónlistarkonan Cardi B á rándýrt töskusafn sem dóttir hennar komst í á dögunum. TheStewartofNY/GC Images

Stórstjarnan Cardi B hefur rándýran smekk og á gríðarlegt töskusafn sem er jafnvel hundruð milljóna krónu virði. Dóttir hennar Kulture sem er sex ára gömul gerir sér skiljanlega ekki grein fyrir því og hún tók nýverið upp á því að krota smá á tösku Cardi sem er hvað þekktust fyrir það að vera ein dýrasta taska í heimi.

Er um að ræða hina svokölluðu Birkin tösku frá franska tískuhúsinu Hermès en töskuhönnunin er skírð í höfuðið á goðsögninni Jane Birkin sem er hvað þekktust fyrir feril sinn í leiklist og tónlist. 

Cardi á fjöldan allan af Birkin töskum en umrædd taska er dökkgul á lit og kostar um átta miljónir króna. 

„Sjáiði hvað dóttir mín gerði við töskuna mína! Sjáiði hvað dóttir mín gerði við töskuna mína,“ endurtók Cardi á Instagram síðu sinni þar sem hún sýnir hvernig listrænni dóttur hennar tókst að teikna krúttlegt hjarta beint á rándýrt leðrið. 

Þetta virðist þó ekki hafa farið mikið fyrir brjóstið á tónlistarkonunni og sker taskan sig nú enn meira úr í veglegu safninu. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.