Höfuðborgarholdsveikin
Ég held það segi meira um íslenska pólitík en samgönguráðherra að hann sá sig því miður knúinn til að fylgja þessum góðu ákvörðunum úr hlaði með fúkyrðaflaumi í garð Reykjavíkurlistans. Er það virkilega ennþá dauðasynd að vera sammála yfir flokkslínur? Er það svo viðkvæmt að taka ákvarðanir sem koma íbúum höfuðborgarsvæðisins vel að það sé pólitísk nauðsyn að gera það undir formerkjum stríðs fremur en friðar? Þarf virkilega að nálgast framfaramál á höfuðborgarsvæðinu eins og holdsveiki á miðöldum?
Ég vona að ég sé ekki að gera samgönguráðherra mikinn óleik með því að upplýsa að samstarf Reykjavíkurborgar við hann og ráðuneyti hans á þessu kjörtímabili hefur verið aldeilis prýðilegt. Hvort sem litið er til undirbúnings að byggingu Tónlistar- og ráðstefnuhúss, skilningi á hlutverki Reykjavíkur við að efla ferðaþjónustu um land allt yfir vetrarmánuðina eða bandalags um lagningu Sundabrautar hefur ekki gengið hnífurinn á milli. Mér finnst vissulega ennþá að eitt mikilvægasta hagsmunamál framtíðarinnar sé að flugvöllurinn í Vatnsmýri víki fyrir íbúabyggð og mér finnst óréttlátt að höfuðborgarsvæðið leggi til 75% bensíngjalda en aðeins 25% af Vegaáætlun renni til úrbóta þar. Það er hins vegar ekki síður mikilvægt að stjórnmálamenn starfi að sameiginlegum stefnumálum yfir flokkslínur og láti pólitíska andstæðinga njóta sannmælis þegar við á. Sturla Böðvarsson getur verið stoltur af loforði um úrbætur á Miklubraut-Kringlumýrarbraut og ég legg glaður með honum í brimskaflinn við að tryggja Sundabraut framgang. Samstaða samgönguráðherra og Reykjavíkurlistans við forgangsröðun framkvæmda er ekki feimnismál heldur fagnaðarefni.
Það er með ólíkindum hvað það virðist mikið feimnismál þegar ráðherrar ríkisstjórnarinnar taka skynsamlegar ákvarðanir sem koma sér vel fyrir Reykjavík og höfuðborgarsvæðið. Gott dæmi um þetta birtist í vikunni. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra gaf frá sér þá ánægjulegu yfirlýsingu að úrbóta væri að vænta á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar strax næsta vor. Í miðopnugrein í Morgunblaðinu tók ráðherrann undir þá niðurstöðu Reykjavíkurlistans að útvíkkun þessara fjölförnu gatnamóta væri fljótlegasta og besta lausnin til að greiða fyrir umferð og tryggja umferðaröryggi fremur en að bíða mislægra gatnamóta sem fyrst geta orðið að veruleika eftir fimm ár. Og ráðherra gekk lengra. Samhliða verður unnið markvisst að lagningu Sundabrautar, mikilvægustu samgönguframkvæmd landsins. Ég hefði ekki getað samið skynsamlegri yfirlýsingu sjálfur.
Skoðun
Hér er kona, um konu…
Vilborg Gunnarsdóttir skrifar
Vegna greinar Snorra Mássonar
Guðmundur Andri Thorsson skrifar
Ertu á krossgötum?
Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar
Vísvita villandi fréttaflutningur Morgunblaðsins?
Sigurjón Þórðarson skrifar
Hafa fyrrum æskunnar eftirlætisbörn og nú ellinnar olnbogabörn fengið nóg?
Gunnar Ármannsson skrifar
Máttur kaffibollans
Ásta Kristín Sigurjónsdóttir skrifar
Hefjum aðildarviðræður við Bandaríkin
Einar Jóhannes Guðnason skrifar
Eru tengsl milli Úkraínustríðsins og breyttrar stöðu Grænlands?
Hilmar Þór Hilmarsson skrifar
Árið 1975 er að banka
Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar
Viljum við að erlendir milljarðamæringar setji einhliða leikreglurnar í almannarýminu okkar?
Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Val Vigdísar
Skúli Ólafsson skrifar
Friður á jörðu
Þröstur Friðfinnsson skrifar
Af hverju eru kennarar að fara í verkfall?
Anton Már Gylfason skrifar
Opið bréf til Íslandspósts ohf.
Gróa Jóhannsdóttir skrifar
Gaza getur ekki beðið lengur
Hjálmtýr Heiðdal,Magnús Magnússon skrifar
Ísland yrði betra með aðild að Evrópusambandinu
Jón Frímann Jónsson skrifar
SVEIT – Kastið inn handklæðinu
Aðalsteinn Árni Baldursson skrifar
Skjáfíkn - vísindi eða trú?
Ásdís Bergþórsdóttir skrifar
Evrópusambandið eða nasismi
Snorri Másson skrifar
Friður eða svikalogn? Hilmari Þór Hilmarssyni, prófessor, svarað
Andri Þorvarðarson skrifar
Hlýnun jarðar mun ekki valda heimsendi
Sæunn Kjartansdóttir skrifar
Listin að styðja en ekki stýra
Árni Sigurðsson skrifar
Með vægi í samræmi við það
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
Hugvíkkandi efni: Forvitni umfram dómhörku
Bergsveinn Ólafsson skrifar
Velferðartækni er það lykillinn að sjálfbærara heilbrigðiskerfi?
Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar
Hindrum fleiri græn gímöld með einföldun regluverks
Ásta Logadóttir,Trausti Björgvinsson skrifar
Vegna FB færslu Kristins Hrafnssonar: Misskilningur um endurgreiðslukerfi kvikmynda
Ólafur William Hand skrifar
Hvernig tölum við um mat í kringum börnin okkar?
Berglind Lilja Guðlaugsdóttir skrifar
Fangelsismál - Sparnaður og endurhæfing
Ólafur Ágúst Hraundal skrifar