Nemendur komnir í gang á ný 3. nóvember 2004 00:01 "
Krakkarnir í mínum bekk skiluðu sér allir eftir verkfallið og eru þokkalega stemmdir. Mér skilst að sumir hafi eitthvað kíkt í bækurnar en í dönskunni er sjálfsnám dálítið erfitt því þar er margt sem þarf að leiða þá í gegnum," segir Sóley Halldórsdóttir, dönskukennari í Háteigsskóla og umsjónarkennari í 10. bekk. Hún segir suma nemendur hafa nýtt verkfallið til ferðalaga, meðal annars heimsókna til frændfólks á landsbyggðinni. "Annars held ég að mikið hafi verið horft á spólur og mikið sofið út," bætir hún við. Sóley segir nemendur sína vissulega áhyggjufulla vegna samræmdu prófanna enda séu þeir að fara að útskrifast í vor og færa sig yfir í framhaldsskólana. Sjálf hefur hún áhyggjur af unga fólkinu en líka af ástandinu í kennaradeilunni. "Það er ekkert gott hljóð í fólki enda er þetta tilboð sem komið er fram hrein móðgun við kennarastéttina. Það eru komnar fram launatöflur sem maður getur mátað sjálfan sig við og þetta er bara grín. Þó að kennslan sé hugsjónastarf að nokkru leyti þá þurfa kennarar að fá greitt í samræmi við nám og vinnuframlag." Sóley segir líta út fyrir að miðlunartillagan verði felld og horfir því jafnvel fram á verkfall aftur strax í næstu viku. "Það verður eitthvað meira að koma frá samningsaðilum til að þessi mál leysist," segir hún og röddin lýsir einbeitni.
Nám Mest lesið Myndaveisla frá stjörnufans og gleðinni í Víðidal Lífið Brat Pitt í mynd um Formúlu 1 í framleiðslu Hamilton Bíó og sjónvarp „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Setti sér markmið og hóf veitingarekstur átján ára Lífið Högni og Snæfríður eignuðust stúlku Lífið Ólafía Hrönn reyndist vera á bak við „stóra pokamálið“ Lífið Sauð upp úr í stjörnufansi á golfmóti Coolbet Lífið Kvikmyndastjarna slær í gegn á Landsmóti hestamanna Lífið Biden móment hjá Nick Cave í Eldborg Lífið Júlía Margrét gengin út Lífið Fleiri fréttir Fjöldamet á stærstu listasýningu í sögu Hornafjarðar „Hluti af heild sem við skiljum ekki“ Magnús Geir endurráðinn þjóðleikhússtjóri „Ef ég væri einmana myndi ég ganga í Sjálfstæðisflokkinn“ Myndaveisla: Níu líf of stórkostleg fyrir eftirsjá Þau eru tilnefnd til Ísnálarinnar í ár Hvað eigum við að kalla eiginmann forseta? Sjá meira