Innlent

Færri barnaslys í kennaraverkfalli

Landlæknir hefur tekið saman upplýsingar um slys á börnum 5-15 ára meðan á kennaraverkfalli stóð nú í haust. Byggt er á upplýsingum úr Slysaskrá Íslands sem samanstendur af gögnum frá slysadeild Landspítala - háskólasjúkrahúss, Tryggingamiðstöðinni, lögreglunni og Vinnueftirlitinu. Skoðuð voru slys á ríflega 8 vikna tímabili, frá 20. september til 16. nóvember 2004, og þau borin saman við slys sama tímabil árið á undan. Það ber að taka fram að kennt var í fjóra daga á ofangreindu tímabili, 2-5. nóvember 2004, eftir að miðlunartillaga kom fram og áður en hún var felld í atkvæðagreiðslu kennara. Meðan á verkfalli stóð bárust Slysaskrá Íslands upplýsingar um 682 slys á börnum í ofangreindum aldurshópum, samanborið við 848 slys á sama tímabili árið á undan. Skráningum á skólaslysum fækkaði um tæp 80% milli ára á meðan slys í öðrum flokkum stóðu nokkurn veginn í stað. Dreifing slysa eftir tíma sólarhrings meðan á verkfalli stóð, samanborið við árið í fyrra, sýnir að í ár áttu slysin sér stað mun síðar á deginum. Hápunktinum var náð um kvöldmatarleytið, milli klukkan 19 og 20, meðan flest slys í fyrra urðu milli klukkan 15 og 16 síðdegis.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×