Innlent

Einn enn handtekinn

Maður á fimmtugsaldri var handtekinn á fimmtudagsmorgun og úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald í gær. Handtakan var í tengslum við rannsókn á umfangsmiklu fíkniefnasmygli hingað til lands þar sem fíkniefnum var smyglað í tveimur sendingum með Dettifossi auk þess sem um tvö þúsund e-töflum var smyglað til landsins í pósti. Sex manns eru nú í haldi lögreglu vegna málsins. Tveir til viðbótar voru einnig handteknir en þeim var síðar sleppt úr haldi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×