Sport

Ísland 4 mörkum undir

Það lítur ekki gæfulega út hjá íslenska liðinu í handknattleik eftir fyrri hálfleikinn gegn Krötum á Ólympíuleikunum í Aþenu. Staðan í hálfleik er 16-12, Króötum í vil. Ólafur Stefánsson, Guðjón Valur Sigurðsson og Jaliesky Garcia eru markahæstir, hafa allir skorað þrjú mörk. Sóknarleikur íslenska liðsins er afar þunglama- og ráðleysislegur. Heimsmeistarar Króatíu hafa ekki þurft að sýna neinn stjörnuleik til að ná þessu forskoti.  



Fleiri fréttir

Sjá meira


×