Innlent

Geir krónprinsinn

Birgir Hermannsson segir niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Fréttablaðsins ekki koma á óvart. "Geir H. Haarde er krónprins Sjálfstæðisflokksins," segir Birgir. Birgir telur útkomu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur í könnuninni heldur ekki koma á óvart. "Þorgerður Katrín hefur náttúrlega verið í umræðunni ef menn ætluðu að hoppa niður um eina kynslóð," segir Birgir, sem segir þó athygli vekja hversu lágt fylgi Björns Bjarnasonar mælist. "Hann er eiginlega alveg út úr myndinni," segir Birgir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×