Innlent

SUF vill fara aðrar leiðir

Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna vill fara allt aðrar leiðir varðandi fjölmiðlafrumvarpið en forysta flokksins stefnir að og vill bíða með að að lögfesta fjölmiðlalög á ný. Þetta kemur fram í ályktun SUF sem samþykkt var í gærkvöldi. Ungir framsóknarmenn telja að ekki aðeins beri að fresta lögfestingu nýrra laga um fjölmiðla þar til víðtækt samráð hefur verið haft við hagsmunaaðila, stjórnarandstöðu og fólkið í landinu, heldur sé mikilvægt að stjórnmálaflokkunum sjálfum gefist tími og tóm til þess að móta sína eigin stefnu í málinu. Það verði best gert á vettvangi flokksþinga og landsfunda og að kjósendum eigi fyrst að gefast færi á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við stofnanir flokkanna. Þar geti almenningur einna helst haft áhrif á ákvarðanir sem teknar eru á Alþingi og því eðlilegt, í ljósi þess að málið varðar grundvallarmannréttindi og stjórnskipun landsins, að stofnanir flokkanna fái skoðanir kjósenda ti umfjöllunar. Þrátt fyrir að ungir framsóknarmenn séu þannig á öndverðum meiði við flokksforystuna eru þeir ánægðir með staðfestu Halldórs Ásgrímssonar, formanns flokksins, sem „af lipurð hefur sveigt Sjálfstæðisflokkinn frá afleitu upphaflegu frumvarpi Davíðs Oddssonar“, eins og það er orðað í ályktuninni, og þar segir enn fremur: „Ber sú framistaða skýrt merki um um hæfi Halldórs til að koma auga á skynsamlegar leiðir út úr erfiðum aðstæðum, án alls óðagots.“ Á Deiglunni, þar sem ungir, framsæknir Sjálfstæðismenn tjá sig, er þeirri spurningu varpað fram hvort það geti verið - ef 26. grein stjórnarskrárinnar er virk - að Alþingi geti einfaldlega, í hvert sinn sem málum er skotið til þjóðarinnar, samþykkt nánast samhljóða lög og fellt þar með hin eldri úr gildi og komist þannig hjá þjóðaratkvæðagreiðslu fram í hið óendanlega.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×