Viðskipti innlent

Högnuðust um 6,5 milljarða

Hluthafar KB banka, sem tóku þátt í hlutafjárútboði bankans á dögunum, hafa hagnast um rúmlega sex og hálfan milljarð króna. Búist er við að bankinn vaxi enn frekar á næstunni en hann er nú töluvert stærri en Íslandsbanki og Landsbanki til samans. Kaup KB banka á hinum danska FIH eru stærstu viðskipti Íslendinga erlendis fyrr og síðar en kaupverðið var 84 milljarðar króna að viðbættum 26 milljarða króna arði sem seljendur héldu eftir. Hluthafar höfðu forkaupsrétt í útboðinu og var talað um auðfenginn gróða. Það kom líka á daginn að 96 prósent hluthafa tóku þátt, þar af rúmlega 20 þúsund Íslendingar. Miðað við gengið í dag högnuðust hluthafar um 60 krónur á hlut. Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri KB banka, segir nauðsynlegt að hafa mjög sterkan hluthafahóp á bak við sig til að geta gert þetta. Það segir hann vera raunina hjá KB og segist hann stoltu af hinum mikla fjölda hluthafa. Hann reiknar jafnvel með að um heimsmet sé að ræða havð varðar hlutfall þjóðarinma sem á hlut í bankanum. Margir eiga von á að bréf í bankanum hækki enn frekar á næstunni. Meðal annars hefur verið mikið rætt og ritað um hugsanlega yfirtöku KB banka á öðrum erlendum banka, breska bankanum Singer og Friedlander. Má segja að stjórn bankans hafi þegar undirbúið frekari stækkun með hlutafjárútboðum þar sem aðrir en forkaupsréttarhafar komast að. Gengi hlutabréfa í breska bankanum hefur tekið stökk að undanförnu vegna áhuga Burðarráss sem hefur tryggt sér átta prósenta hlut í honum - getgátur hafa verið uppi um stríðni Landsbankaarmsins, jafnvel hugmyndaleysi. Hreiðar segist ekki vita hvað skuli segja í því sambandi. Í heiminum séu yfir 2000 bankar en þeir hafi valið að fjárfesta á sama stað og KB banki. Það sýni kannski að þeir hafi valið rétta kostinn.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×