Viðskipti innlent

Og Vodafone kaupir Margmiðlun

Og Vodafone hefur gert samning um kaup á Margmiðlun fyrir 310 milljónir króna. Þar af er um helmingur greiddur með peningum en eftirstöðvarnar greiðir símafyrirtækið með því að gefa út nýja hluti til seljenda sem þeir mega selja Og Vodafone aftur eftir tvö ár. Samkomulagið er gert með fyrirvara um samþykki samkeppnisyfirvalda um samruna félaganna. Starfsmönnum Margmiðlunar fækkar við samrunann.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×