Foreldrar grunnskólabarna mótmæla 16. september 2004 00:01
Foreldrar grunnskólabarna hafa efnt til mótmælastöðu á Austurvelli klukkan tólf á morgun vegna yfirvofandi kennaraverkfalls. Mikil óvissa ríkir hjá foreldrum vegna stöðu mála en fátt bendir til þess að hægt verði að afstýra verkfalli. Fundur samningamanna í kennaradeilunni hefur staðið hjá ríkissáttasemjara í allan dag en ekkert hefur þokast í samkomulagsátt að sögn Eiríks Jónssonar, formanns Kennarasambands Íslands. Vaxandi líkur eru á að boðað verkfall í grunnskólum hefjist á mánudag þar sem engin lausn virðist liggja á samningaborðinu. Foreldrafélag Hagaskóla skoraði í dag á deilendur að leysa þann hnút sem málið er í og gera sitt ýtrasta til að samningar megi takast. Mikil óvissa ríkir hjá foreldrum grunnskólabarna vegna yfirvofandi kennaraverkfalls og hafa margir áhyggjur af þeim þúsundum skólabarna, sem þurfa að vera heima hjá sér, skelli verkfallið á. Foreldrar grunnskólabarna ætla að standa fyrir mótmælastöðu á Austurvelli klukkan tólf á morgun og hafa foreldrar á landsbyggðinni, og Heimili og Skóli, landssamtök foreldra, hvatt til samskonar aðgerða í sveitarfélögum landsins.
Fréttir Innlent Kjaramál Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Innlent Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Innlent Sundhnúksgígaröðin að verða búin Innlent Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Innlent Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Innlent Vargöldin á Haítí versnar hratt Erlent Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Erlent Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Innlent Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Innlent Fleiri fréttir Biskup fagnar hækkun sóknargjalda Sundhnúksgígaröðin að verða búin Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Breyting á eldgosinu og stór dagur í Karphúsinu Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Minni virkni í miðgígnum Vextir og kosningar í Sprengisandi Réttindalausir stútar á ferðinni Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Ók á ljósastaur við Grensásveg Eldur kviknaði í bíl í Mosfellsbæ Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt til niðurskurð á hverju ári Hefur gefið Landgræðslunni 26 milljónir króna í formi fræja Mikilvægt að Bláa lónið geti opnað sem fyrst Hvetja íbúa Suðurnesja til að spara heita vatnið Varnaraðgerðir í Svartsengi og umdeild yfirhalning hjá Jaguar Ísland virðir handtökuskipan á hendur Netanjahú Fjölmiðlabann í kjaradeilu kennara Hildur hnýtir í Sigurð og sakar hann um ýkjur Straumar valda álagi á varnargarða og staðan viðkvæm Byggt og byggt á Suðurlandi og það þarf að byggja enn meira KÍ segir ummæli Ingu Rúnar „rannsóknarefni“ „Við gerum aldrei neitt nema með fullu samþykki“ Bein útsending: Hvar eru umhverfis- og loftslagsmálin í kosningabaráttunni? Kennarasambandið sýni kennurum „alvarlega lítilsvirðingu“ Spennandi og sögulegar kosningar: Fjórir flokkar berjast fyrir lífi sínu í fallbaráttu Sjá meira