Innlent

12 umsóknir borist undanþágunefnd

Það mun væntanlega skýrast þegar líður á daginn hvort, eða hvaða undanþágubeiðnir, svonefnd undanþágunefnd mun veita vegna kennaraverkfallsins en tólf umsóknir hafa borist. Engar vísbendingar eru um að deilendur séu að undirbúa nýtt útspil til að liðka fyrir lausn deilunnar.  Samband ungra sjálfstæðismanna telur að eðlilegra væri að kennarar tæku það skref í faglega átt í deilunni að hefja umræðu um mat á hæfni og dugnaði hvers og eins kennara. Slíkt sé mun vænlegra til árangurs en karp um kennsluskyldu og frítíma. Hvetja ungir sjálfstæðismenn sveitarfélög og kennara til að íhuga breytt fyrirkomulag samninga og einkaframkvæmd í rekstri skólastofnana.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×