Innlent

Alvarlegu slysi forðað

Litlu mátti muna að mjög alvarlegt umferðarslys yrði þegar ökumaður jeppabifreiðar tók fram úr bílaröð og lenti á fólksbíl sem kom úr gagnstæðri átt á móts við Ingólfshvol í Ölfusi um kvöldmatarleytið í fyrrakvöld. Ökumaður fólksbílsins ók eins mikið út í kant og unnt var þannig að jeppinn skrapaði hlið hans í stað þess að lenda beint framan á honum. Öðrum bíl sem kom á eftir fólksbílnum var ekið út af til að forðast árekstur. Engin slys urðu á fólki.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×