Innlent

Úrskurðaður í síbrotagæslu

Maður um tvítugt, sem staðinn var að verki við innbrot í verslunarmiðstöð í Breiðholti aðfaranótt þriðjudags, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald í fimm vikur, eða til sautjánda nóvember. Innbrotsþjófurinn hafði ekki náð að stela neinu þegar lögreglan handtók hann. Að sögn lögreglu er gæsluvarðhaldið eins konar síbrotagæsla enda hefur maðurinn verið iðinn við að brjóta af sér.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×