Innlent

Strokufanginn fundinn

Hafnarfjarðarlögreglan handtók seint í gærkvöldi ungan mann sem slapp úr höndum lögreglu og fangavarða við Hegningarhúsið við Skólavörðustíg um hádegisbil í gær. Þá var verið að flytja hann og greip hann tækifærið, reif sig lausan og komst undan á hlaupum. Hann var handtekinn í heimahúsi í Hafnarfirði og gerði þá ekki tilraun til að komast undan.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×