Erlent

Bush aftur framúr

George W. Bush er kominn með 102 kjörmenn og John Kerry 77 samkvæmt spám flestra stóru sjónvarpsstöðvanna vestanhafs. ABC, CNN, Fox og NBC spá þessu allar. NBC telur hins vegar að Bush sé kominn með 108 kjörmenn en er sammála spánni um 77 kjörmenn Kerrys. Búast má við breytingum á næstu mínútum þegar kjörstaðir loka í fimmtán ríkjum. Tvö stór ríki loka kjörstöðum klukkan tvö, þeirra á meðal Texas sem færir George W. Bush 34 kjörmenn og New York þar sem John Kerry fær að öllum líkindum 31 kjörmann.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×