Innlent

Borgarstjóri nýtur ekki trausts

Þórólfur Árnason borgarstjóri nýtur ekki óvéfengjanlegs trausts Vinstri-grænna í Reykjavík sem standa að R- listanum, samkvæmt niðurstöðu samráðsfundar flokksins í gærkvöldi. Að sögn Svandísar Svavarsdóttur, formanns Vinstri-grænna í Reykjavík, í viðtali við fréttastofuna í morgun, verður málið væntanlega rætt á fundi meirihlutafulltrúa í Reykjavík klukkan tíu og aftur á fundi oddvita borgarstjórnarflokkanna, sem standa að R listanum , í hádeginu. Svandís segir að ástæða þessa sé augljós þegar farið sé ofan í skýrslu Samkeppnisráðs um ólöglegt samráð olíufélaganna um verðlagningu. Eins og kunnugt er var Þórólfur markaðsstjóri Essó þegar það fór fram.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×