Innlent

Hækkun leikskólagjalda hörmuð

UJR minna á að samþykkt var á landsfundi Samfylkingarinnar fyrir um það bil ári að stefna bæri að því að afnema leikskólagjöld í áföngum og byrja á niðurfellingu þeirra vegna 5 ára barna. Bent er á að í stefnuskrá R-listans í leikskólamálum segir að fella eigi niður leikskólagjöld fyrir 5 ára nemendur. Ungum jafnaðarmönnum í Reykjavík finnst að tillaga leikskólaráðs um mikla hækkun leikskólagjalda á suma foreldra sé ekki í anda þessarar stefnu og telja að hún sé skref aftur á bak.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×