Innlent

Fyrsta lota í lokaviku viðræðna

Ríkissáttasemjari segir að fyrsta lota í síðustu viku viðræðna samninganefnda kennara og sveitarfélaganna snúist um að reyna að ná einhverri niðustöðu um heildarsamning. Næstu skref séu væntanlega að átta sig á hvort einhver þau atriði sem samkomulag sé um eigi heima í erindi til gerðardóms. Fundur samninganefnda kennara og sveitarfélaga stóð í tæpar tvær klukkustundir eins og við hafði verið búist þar sem ársfundur Kennarasambandsins var haldinn í gær. Deilendur funda í Karphúsinu frá klukkan tíu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×