Innlent

Tvær olíuskýrslur til

Samkeppnisráð lét útbúa tvær útgáfur af olíuskýrslunni. Opinberu skýrsluna má nálgast á heimasíðu Samkeppnisstofnunar en hin útgáfan verður eingöngu afhent áfrýjunarnefnd samkeppnismála og dómstólum. Guðmundur Sigurðsson, forstöðumaður samkeppnissviðs Samkeppnisstofnunar, segir að óopinbera skýrslan sé með ýmsum trúnaðarupplýsingum. Til dæmis séu þar rekstrarlegar og viðskiptalegar upplýsingar um félögin sem trúnaður ríki um.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×