Innlent

Leikskólakennarar hjá sáttasemjara

Samninganefndir leikskólakennara og sveitarfélaga komu saman hjá Ríkissáttasemjara nú klukkan níu og fara leikskólakennarar fram á svipaðar kjarabætur og aðrir kennarar sömdu um. Samningar þeirra hafa verið lausir síðan í ágústlok. Í síðustu viku ætluðu þeir að efna til atkvæðagreiðslu um verkfallsheimild en ákváðu að bíða framvindu mála hjá grunnskólakennurum. Leikskólakennarar eru um fimmtán hundruð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×