Erlent

Fleiri lík finnast

Lík þriggja manna sem skotnir höfðu verið í höfuðið fundust á götum Mósúl í Írak í dag. Líklegt er talið að mennirnir séu úr þjóðvarðaliði Íraka en það hefur ekki verið staðfest. Í gær fundust lík níu írakskra þjóðvarðaliða á víðavangi í borginni sem einnig höfðu verið drepnir með skoti í höfuðið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×