Erlent

Ghazi Allawi sleppt úr gíslingu

Ghazi Allawi, frændi Iyads Allawi, forsætisráðherra Íraks, var látinn laus á sunnudag í Bagdad en hann var tekinn í gíslingu þann 10. nóvember. Daginn eftir að Allawi náðist lýsti hópur uppreisnarmanna sig ábyrgan fyrir verkinu og hótaði að afhöfða hann, konu hans og tengdadóttur þeirra ef Iyad Allawi hætti ekki árásum á landsvæði byltingarsinna í Fallujah og sleppti föngum í Írak. Konunum tveim var sleppt þann 15. nóvember.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×