Innlent

Reykjavík ræður yfirmenn

Meirihluti borgarráðs samþykkti í gær skipan í stöður í yfirstjórn Reykjavíkurborgar. Konur munu gegna tíu störfum af þeim fjórtán sem ráðið var í. Svanhildur Konráðsdóttir, forstöðumaður Höfuðborgarstofu, var ráðin sviðsstjóri menningar- og ferðamálasviðs, Hrólfur Jónsson slökkviliðsstjóri var ráðinn í starf sviðsstjóra framkvæmdasviðs, Anna Skúladóttir, fjármálastjóri Reykjavíkurborgar, var ráðin sviðsstjóri fjármálasviðs og Regína Ásvaldsdóttir, verkefnisstjóri þjónustu- og hverfamála hjá Reykjavíkurborg, var ráðin sviðsstjóri þjónustu- og rekstrarsviðs.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×