Erlent

12 látnir eftir sjálfsmorðsárás

Að minnsta kosti tólf létust og tíu eru særðir eftir sjálfsmorðsárás fyrir utan írakska lögreglustöð í útjaðri Ramadí-borgar í Írak í morgun. Að sögn talsmanns sjúkahússins þangað sem hinir særðu voru fluttir eru um 90% fórnarlambanna lögreglumenn. Maðurinn lagði bifreið sinni fyrir utan lögreglustöðina þar sem fjöldi lögreglumanna stóð í röð til að fá afhenta launaávísun og sprengdi bílinn svo í loft upp.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×