Innlent

Síðasti dagur Þórólfs

Þórólfur Árnason lætur af störfum í dag sem borgarstjóri í Reykjavík. Við tekur Steinunn Valdís Óskarsdóttir. Þórólfur kvaddi starfsmenn borgarinnar í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur í morgun. Að sögn upplýsingafulltrúa Ráðhússins var boðið upp á morgunverð, hljómsveit Ráðhússins spilaði nokkur lög og tók borgarstjóri eitt lag með þeim. Helga Jónsdóttir borgarritari þakkaði borgarstjóra góð störf í þágu borgarinnar og færði honum gjöf frá starfsfólkinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×