Erlent

BBC lét gabba sig

Breska ríkisútvarpið BBC lét í morgun gabba sig og birti viðtal við meintan talsmann Dow Chemical Company sem sagði fyrirtækið bera fulla ábyrgð á eiturefnaslysi í Bhopal á Indlandi árið 1984. Sagði hann fyrirtækið ætla að greiða um tólf milljarða dollara, eða sem nemur um 770 milljörðum króna, í skaðabætur. Skömmu síðar varð ljóst að um gabb var að ræða og hefur BBC dregið fréttina til baka. Slys varð í verksmiðju Union Carbide, sem er í eigu Dow Chemical, í Bhopal á Indlandi árið 1984 og fjörutíu tonn af baneitruðu efni láku út. 3500 manns létu lífið og þúsundir til viðbótar þjást ennþá af afleiðingum slyssins. Ástandið í borginni er ennþá mjög bágborið og tuttugu þúsund manns eru til að mynda tilneydd að drekka eitrað grunnvatn þaðan. Talið er að 120 þúsund manns þurfi á læknishjálp að halda vegna slyssins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×