Erlent

Sjö Kúrdar drepnir í Mósúl

Að minnsta kosti sjö Kúrdar létust þegar sjálfsmorðsárás var gerð á rútu sem þeir voru í í borginni Mósúl í Írak í dag. Í morgun dóu fimmtán manns og um fimmtíu slösuðust þegar tvær öflugar bílsprengjur sprungu í nágrenni við græna svæðið svokallaða í Bagdad. Sprengjunum var komið fyrir í nágrenni opinberra bygginga og erlendra sendiráða, þar sem gríðarlegri öryggisgæslu er haldið uppi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×