Erlent

Of dýrar fyrir markaðinn

Kostnaður við að auglýsa í breskum dagblöðum og tímaritum mun aukast svo mikið á næsta ári að hætta er á að prentmiðlar verði of dýrir fyrir auglýsingamarkaðinn. Þetta kemur fram í könnun virtrar fjölmiðlastofnunar í Bretlandi. Kostnaðurinn við að kaupa pláss í dagblöðum og tímaritum mun hækka um 9,2 %, langt upp fyrir verðbólgustig. "Það er nokkur hætta á að með því að hækka auglýsingaverðið svo mikið muni þeir setja sjálfa sig út af markaðinum," sagði starfsmaður stofnunarinnar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×