Innlent

Ráðherra rak í rogastans

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra vísar því á bug að hann hafi skipt um skoðun um málefni Mannréttindaskrifstofu Íslands eins og haldið var fram í fréttum um helgina. "Mig rak í rogastans því þetta minnisblað sem vitnað hefur verið til, er ekki frá mér komið," segir Halldór. Á blaðið er handskrifuð athugasemd með upphafsstöfunum H.Á. "Þetta er skrift Helga Ágústssonar, þáverandi ráðuneytisstjóra, ekki mín". Segir ráðherra að þarna hafi verið um að ræða drög sett upp að beiðni Mannréttindaskrifstofu Íslands.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×