Erlent

Kosningarnar fari fram á 2-3 vikum

Óháð nefnd sem fjallar um framkvæmd kosninga í Írak útilokar ekki að kosningarnar fari fram á tveggja til þriggja vikna tímabili. Sem fyrr verður viðmiðunardagurinn þó 30. janúar á næsta ári. Ýmsir hafa stungið upp á því að rétt væri að framkvæma kosningarnar í smáum skrefum á nokkurra vikna tímabili, nú síðast Vladimír Pútín Rússlandsforseti sem segist þó yfir höfuð efast um að kosningarnar geti farið fram á meðan landið sé hernumið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×